152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[15:57]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið, en ég talaði aldrei um öfgafrjálshyggju, síður en svo. Ég er mjög hlynntur atvinnufrelsi. Það er eitthvað sem hv. þingmaður mætti skoða, t.d. varðandi strandveiðarnar, þ.e. aukið atvinnufrelsi og hvenær við eigum að takmarka atvinnufrelsi. Og þetta um stofnsetningarréttinn, að hann sé alveg klár þar varðandi strandveiðarnar.

Varðandi það að banna erlend öpp. Það sem ég velti fyrir mér er að þegar við erum að tala um leyfisskyldu á íslenskum markaði, hvort ætti að binda það við íslensk öpp — þarna erum við að tala um atvinnustarfsemi eingöngu á Íslandi. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að við getum skapað skilyrði fyrir íslensk öpp og við sjáum til þess að hagnaðurinn af íslenskri atvinnustarfsemi verði eftir á Íslandi. Það er ekkert mál að gera Ísland að einhverri nýlendu, útibúi, það er minnsta mál í heimi. Þessi öpp eru ekki einhver guðsblessun sem kemur yfir heiminn og þeir sem bjuggu til Uber-appið eru ekki einhverjir guðir. Ég velti því bara upp hvort skoða ætti að binda þetta með þeim hætti að það verði einhvers konar íslensk miðstýring, íslensk stýring varðandi þá þjónustu sem á að veita með hugbúnaði. Það er ekki einu sinni skilgreind leigubifreiðastöð. Og það er talað um virka starfsstöð. Það vita það allir að appið er ekki virk starfsstöð. Hvað er leigubifreiðaakstur? Er það appið? Nei, það er ekki appið. Það er það sem þarf að hafa alveg á hreinu. Eigum við að hafa þessa leigubifreiðastöð, þessa stöð úti í heimi, í einhverju húsi þar? Nei, auðvitað þarf hún að vera hérna á Íslandi. Það er alveg sama með hugbúnaðinn sem veitir þessa þjónustu, þarf að vera einhvers konar íslenskt viðmót. Alveg eins og ef ég tek Strætó þá er ég með íslenskt app sem ég nota þá til að taka strætó. Ég tel að það ætti að vera svipað varðandi leigubílstjóra, það ætti þá að vera app varðandi leigubílstjórana, eða er kannski hægt að hafa einhvers konar erlent strætóapp úti í heimi sem þjónar strætó í Reykjavík? Það er að sjálfsögðu ekki þannig. Það er app sem lýtur að íslensku umhverfi og það er þannig sem ég lít á þetta. Ég er ekkert á móti erlendri erlendum öppum, síður en svo.