leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og biðst afsökunar á því að hafa ekki sagt það áðan, en það var hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sem talaði um öfgafrjálshyggju, sem ég held að séu mestu öfgarnar í umfjöllun um þetta frumvarp, þau orð sem hér hafa fallið.
En aðeins varðandi þetta með erlendri öppin. Ég held að það sé mjög varhugavert ef við ætlum með einhverjum hætti að fara að skrifa það inn í lagatexta að takmarka notkun á einhverri tækni, hvort það sé búið til í útlöndum eða hér á Íslandi. Og út af því að hv. þingmaður kom aðeins inn á strætóappið eða almenningsvagna þá held ég að það væri alveg frábært ef til væri alþjóðlegt app sem maður hlæði niður í símann sinn einu sinni og maður gæti séð hvernig almenningsvagnar væru víða í heiminum. Því að eitt af því sem gerir manni mjög erfitt fyrir og eitt af því sem gerir ferðamönnum á Íslandi erfitt fyrir er einmitt að þeir þurfa að hlaða niður íslensku appi og svo þegar þeir koma til Danmerkur þurfa þeir að hlaða niður dönsku appi til að komast inn í það hvernig almenningsvagnarnir virka þar. Þess vegna held ég að það hafi verið mikið ákall, kannski sérstaklega frá ungu kynslóðinni sem ferðast mikið og notar öpp, að geta notað sömu öppin og nálgast þjónustu hér á Íslandi. En það breytir því ekki að auðvitað eru þeir sem keyra bílana íslenskir, þeir sem starfa hér. Það er auðvitað ekki hægt að gera það einhvers annars staðar frá. Þannig að ég geld varhuga við því að við hugsum um að hafa einhverja annmarka í löggjöf gagnvart tækninni.
En það sem ég óttast, eins og áður sagði, er að þetta frumvarp gangi ekki nógu langt. En ég ítreka enn það sem ég sagði í ræðu minni: Ég styð þó frumvarpið og held að það sé skref í rétta átt. En í mínum huga er það kannski lítið hænuskref.