leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Ég þakka seinna andsvar hv. þingmanns. Eins og hér er talað um þá er vandi þeirra sem eru með starfsleyfi leigubifreiðastöðvar að starfsstöðin hér á landi sé virk og traust og þá þarf að veita rekstrarleyfi til þess. Það er allt í lagi að sá sem er með rekstrarleyfi noti erlendan hugbúnað. En þá þarf líka að skoða: Hver er þá með umboðið fyrir þennan hugbúnað hér á landi? Hvaða einstaklingur? Sá umboðsaðili hlýtur að hafa einhverjar skyldur á Íslandi í því rekstrarumhverfi sem er hér; að þetta sé bundið við íslenskt — þetta sé leyfi sem veitt er af íslenskum stjórnvöldum á Íslandi. Og það er alveg klárt mál að app er ekki starfsstöð, það er það bara ekki. Það er alveg ljóst að lög um leigubifreiðaakstur sem skilgreina ekki leigubifreiðastöð sem hugtak og hvað það gengur út á eru ófullnægjandi lög. Ef það á að veita rekstrarleyfi til reksturs leigubifreiða þar sem skylda er að hafa leigubifreiðastöð, það eru ófullnægjandi lög. Það verður að vera vitað hvað þetta gengur út á.
Það er sjálfsagt að hafa erlend öpp. Ég velti því upp enn og aftur upp að við þurfum líka að búa til innlendan hugbúnað, við þurfum að hafa innlend öpp, eins og fyrir strætó og annað. Ég er alls ekki á móti atvinnufrelsi. Mér finnst bara svolítið slæmt þegar kemur skipun frá Brussel um að það eigi að auka atvinnufrelsi að þá er hlaupið upp til handa og fóta og komið með frumvarp. En þegar verið er að krefjast atvinnufrelsis í strandveiðum, hvað er gert þá? Nei, þá er allt stoppað. Málefnalegu rökin fyrir leyfisskyldunni eru nokkuð skýr. Það þarf að halda úti rekstri allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, líka á þeim dögum sem lítið er að gera, og það þarf að skipuleggja það. Það er það sem leyfið er grundvallað á, ekki bara þegar Brussel kallar: Heyrðu, nei, við þurfum að gera eitthvað, þetta er orðið svo flott úti í heimi.