152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

leigubifreiðaakstur.

369. mál
[16:10]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Af hverju er þjónustan ekki eins og skyldi? Ég held að ástæðan sé sú að það er krísa í þessari stétt. Þeir sem aka leigubílum bera lítið úr býtum og ég held að þetta sé orðin eins konar aukavinna í harkhagkerfinu. Og það er verið að auka á það enn þá frekar með þessu núverandi kerfi. Það er ekki verið að bæta þjónustuna. Ég tel engar líkur á því að einstaklingur sem keyrir með notkun Uber-appsins eða Lyft-appsins muni auka þjónustuna. Það er alveg kristaltært í mínum huga. Ef það á að auka þjónustuna þá þarf að gera það í núverandi kerfi og það er sjálfsagt að fjölga rekstrarleyfum og bæta núverandi kerfi. Ég tel reyndar að í framtíðinni sé það alveg öruggt mál. Ég hef búið í samfélagi þar sem bæði kerfin eru og ég nota alltaf leigubílaþjónustuna, alltaf. Ég bið þau meira að segja um að vekja mig á morgnana þegar ég þarf að fara í flug. Það er nú ekki flóknara en það. En það er alveg klárt mál að þegar þessi öpp verða komin þá verður engin starfsstöð. Að halda því fram að það geti verið starfsstöð hér á landi sem sé virk og traust samhliða notkun appsins, er bara ekki rétt. Það er ekki þannig.

Hér segir: „Leigubifreiðastöðvar samkvæmt lögum þessum skulu hafa starfsleyfi sem slíkar sem útgefið hefur verið af Samgöngustofu“. Og skilyrðin eru að hafa virka og trausta starfsstöð. Það mun aldrei ganga eftir ef einstaklingur er bara að keyra með Uber-appinu. Það er bara ekki rétt. Það er ekki þannig. Þetta er bara „social dumping“, eins og það heitir. Hér munu einstaklingar koma og taka kúfinn af þessu þegar mest er að gera. Þegar hagnaður er af starfseminni munu þeir hoppa inn í og taka hagnaðinn á meðan hinir sitja uppi með taptímann þegar lítið er að gera og þurfa að bíða mjög lengi eftir að fá ferð þar sem það mun koma mikið misvægi á milli þeirra sem eru í alvöru með þetta sem atvinnugrein á grundvelli leyfis og hinna sem hoppa inn í þetta öðru hverju á grundvelli appsins. Það er þessi mismunur sem er mjög mikilvægt að benda á. Ég veit að í frumvarpinu er reynt að jafna skilyrðin. Ég tel það ekki nægilega vel gert.