kosningar að hausti.
Forseti. Undanfarnar þrennar kosningar hafa verið haustkosningar, 2016, 2017 og 2021. 2016 var boðað til kosninga 29. október í kjölfar þess að Panama-skjölin voru birt sem upplýstu okkur um að einhvers staðar verða peningar að vera, eins og núverandi hæstv. innviðaráðherra komst að orði. Meðal þeirra sem þurftu endilega að geyma peningana sína einhvers staðar voru þáverandi forsætisráðherra og þáverandi og núverandi fjármálaráðherra. Panama-skjölin voru birt þann 3. apríl og leiddu af sér stærstu mótmæli Íslandssögunnar þegar um 22.000 manns söfnuðust saman fyrir framan þinghúsið. Ný stjórn var mynduð og boðað til kosninga um haustið. Hvers vegna ekki var boðað til kosninga strax um vorið er áhugaverð spurning enn þann dag í dag.
Þann 14. september 2017 sleit Björt framtíð stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn vegna alvarlegs trúnaðarbrests vegna uppreist æru málsins. Þá var hins vegar boðað til nýrra kosninga með eins miklu hraði og mögulegt var og fóru kosningar til Alþingis fram þann 28. október 2017. Í það skipti þótti einmitt góð hugmynd að boða strax til kosninga. Það var ekki einu sinni reynt að mynda nýjan meiri hluta eða jafnvel minnihlutastjórn, það var bókstaflega hlaupið aftur í kjörklefana.
Eftir skyndikosningarnar 2017 tók ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur við völdum og komu strax upp vangaveltur um hvort næstu kosningar yrðu aftur að hausti eða hvort kjörtímabilið yrði leiðrétt. Fátt var hins vegar um svör eins og vangaveltur í upphafi árs 2020 gefa til kynna. Þar benti hæstv. forsætisráðherra á að kjörtímabilið væri nú til loka október 2021, sem er tæknilega rétt að sjálfsögðu. Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að það kostaði, með leyfi forseta, blóð, svita og tár að komast til valda og af hverju í ósköpunum ætti maður að gefa það frá sér hálfu ári áður en lög segja til um? Sem segir til um völd þar á bæ. En afstaða fékkst þó að lokum upp úr hæstv. forsætisráðherra sumarið 2020, enda ekki seinna vænna ef það á að halda kosningar að vori. Næstu kosningar voru hins vegar ákveðnar 25. september 2021 til að sleppa við kosningabaráttu í sæmilegu veðri og sæmilegri færð. Haustlægð ógnaði þó kosningadeginum þegar allt kom til alls, sluppum sem betur fer við það.
Önnur rök fyrir haustkosningum, sagði forsætisráðherra, voru að komast fram hjá því sem hefur verið kallað kosningafjárlög, að kosningar á hausti væru góð tímasetning til þess að losna við þann sið. Það er pínulítið öfugsnúið því að fjárlög eru þá tilbúin en án þess að vera birt rétt fyrir kosningar, sem er áhugavert. Í nágrannalöndum okkar kjósa Noregur og Svíþjóð að hausti, Finnar að vori. Danir kjósa næst 4. júní 2023 miðað við fjögurra ára kjörtímabil, fyrr ef boðað er skyndilega til kosninga.
Það er svipað fyrirkomulag og á Íslandi því að í raun erum við með sömu stjórnarskrá. Það er því augljóst að það er hægt að kjósa hvenær sem er ársins en bara af því að það er hægt þýðir það ekki að það sé góð hugmynd að kjósa hvenær sem er ársins. Þess vegna tel ég mikilvægt að við ræðum það nú strax í upphafi kjörtímabilsins hvenær næstu kosningar verða haldnar, þó ekki nema bara til þess að koma í veg fyrir geðþóttaákvarðanir um það í lok kjörtímabilsins, því að að gefinni reynslu undanfarinna ára verður að segja að haustkosningar eru einstaklega slæm hugmynd, ekki síst vegna þess að þingið þarf að samþykkja fjárlög fyrir áramót. Það verður að segjast að ef eitthvað fer úrskeiðis í framkvæmd kosninga eða það gengur illa að mynda ríkisstjórn getur það haft ansi afdrifaríkar afleiðingar fyrir afgreiðslu fjárlaga. Allt fjárlagaferlið, takturinn í því, gerir ráð fyrir kosningum að vori.
Því verður að spyrja hæstv. forsætisráðherra, sem hefur það vald í hendi sér að ákveða dagsetningu næstu kosninga, hvenær þær eiga að vera, sér í lagi vegna þess að ef það verður ákveðið að halda kosningar að hausti aftur, ef haustkosningar verða venjan héðan í frá, þá þarf að gera breytingar til þess að takturinn fyrir fjárlögin sé náttúrulegri og geti virkað í þannig umhverfi.
En kannski er það önnur hugsun sem við þurfum. Kannski þurfum við einmitt nýjan takt í kerfið okkar, ef ekki bara heilt nýtt lag. Kannski er það sem við þurfum að einbeita okkur að nefnilega ný hugsun um þetta. Kannski þurfum við að spyrja okkur hver sé besti tíminn til þess að ganga til kosninga, kosið er til sveitarstjórna á vorin, forseta á sumrin og undanfarið til Alþingis að hausti. En þurfum við ekki að spyrja okkur hvaða tímasetning hentar best og geta svarað af hverju? Ekki út af því hvernig fyrirkomulagið er núna eða af því hvernig það hefur verið gert heldur bara hvernig við getum gert það betra. Það hlýtur alltaf að vera grundvöllur allrar vinnu hérna á þingi að spyrja okkur hvernig við getum gert betur og ég spyr því hæstv. forsætisráðherra og alla aðra flokka hér á þingi: Hvenær er best að hafa kosningar til Alþingis og af hverju?