hegningarlög.
Frú forseti. Ég vil taka undir með þingmönnum sem hafa komið upp til að fagna þessu lagafrumvarpi sem hæstv. dómsmálaráðherra kynnir hér fyrir þingheimi í dag og mælir fyrir, um breytingu á almennum hegningarlögum er varðar barnaníðsefni, hatursorðræðu og mismunun. Eins og fleiri sem stigið hafa í ræðustól fagna ég því sérstaklega að hér sé komið fram frumvarp til laga um breytingu á hegningarlögum er varðar barnaníðsefni. Líkt og fram kom í flutningsræðu hæstv. dómsmálaráðherra er um að ræða viðbrögð við bæði tæknibreytingum, samfélagslegum breytingum og sömuleiðis ákalli almennings um að lagaumhverfið bregðist harðar og skjótar við því sem við höfum verið að sjá á undanförnum árum, sem er aukning á dreifingu á efni sem sýnir börn beitt grófu kynferðislegu ofbeldi. Því er það fagnaðarefni að sjá þetta frumvarp í dag og sömuleiðis það sem varðar hér refsingu, sem er lengd með þessu lagafrumvarpi, og ég styð það heils hugar.
Það er margt annað í þessu ágæta lagafrumvarpi og mig langar koma inn á breytingu á orðalagi um þjóðerni og sömuleiðis hvort um hatursorðræðu sé að ræða sem rekja megi til þjóðernisuppruna eða þjóðlegs uppruna, trúarbragða og kyneinkenna, kynhneigðar, kynvitundar og annarra sambærilegra þátta. Þessu fagna ég mjög og mér finnst að þarna séum við að stíga góð skref og vera sambærileg Norðurlöndunum þegar kemur að hatursorðræðu og útvíkka það ákvæði hegningarlaganna er snýr að hatursorðræðu.
Í því samhengi langar mig að minna á frumvarp um breytingu á hegningarlögum sem ég mælti fyrir hér 19. janúar á síðasta ári um bann við afneitun helfararinnar. Það frumvarp, sem sú sem hér stendur mælti fyrir, var í raun og veru viðbragð við óhugnanlegri þróun sem við sjáum í Evrópu þar sem hatursglæpum hefur fjölgað mjög, og hatursorðræðu líka, þetta er nátengt, byggðum á gyðingaandúð, múslimahatri, kynþáttafordómum og kynþáttahatri, sömuleiðis öðrum glæpum gegn öðrum trúarbrögðum sem hefur fjölgað á ógnarhraða í aðildarríkjum Evrópuráðsins. Mér sýnist að hér sé líka komið til móts við þá þróun og því ber að fagna. Í því samhengi er hægt að benda á ársskýrslu Evrópunefndar gegn kynþáttafordómum, ECRI-nefndarinnar, frá árinu 2019. Þar kemur fram svart á hvítu hversu mikil og hröð fjölgun hefur verið á glæpum byggðum á hatursorðræðu, sem við erum að fjalla um í þessu frumvarpi, sem byggir á þjóðernisuppruna eða þjóðlegum uppruna og sömuleiðis trúarbrögðum, kyneinkennum og þess háttar málum.
Með þessu frumvarpi sem er verið að mæla fyrir í dag er bæði verið að vísa til lagahefðar í nágrannalöndum okkar en líka til þeirra alþjóðlegu sáttmála sem við höfum undirgengist og löngu er orðið tímabært að við komum inn í okkar lagabálka, eins og til að mynda alþjóðasamnings um afnám alls kynþáttamisréttis sem var fullgiltur af Íslands hálfu árið 1967 og tók gildi 4. janúar 1969.
Hér er um gríðarlega gott frumvarp að ræða og ég ætla ekki að hafa ræðu mína mjög langa. Ég styð þetta mál heils hugar og óska þess að hv. allsherjar- og menntamálanefnd afgreiði þetta mál hratt og örugglega sín megin frá og að málið hljóti góða afgreiðslu í þinginu, enda um gríðarlega mikilvægt mál að ræða. Eins og hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir kom inn á áðan vegna fyrri starfa sinna þá hefur það verið nokkuð brýnt nú um nokkurra ára skeið að bregðast við þeirri óheppilegu þróun sem átt hefur sér stað í kynferðisofbeldi á börnum og dreifingu á hvers konar barnaníðsefni. Ég ítreka stuðning minn við málið og óska því góðs gengis í þingsal.