aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum.
Virðulegi forseti. Aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum, hver er á móti því? Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um einmitt aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Með mér á tillögunni eru Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson, hv. þingmenn Flokks fólksins.
Með leyfi forseta hljóðar þingsályktunartillagan svo:
„Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram lagafrumvarp fyrir árslok 2022 sem hafi það að markmiði að auka lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Frumvarpið feli m.a. í sér ákvæði sem tryggi að:
a. sjóðfélagar fari með æðsta vald í málefnum lífeyrissjóða með því m.a. að stjórn lífeyrissjóða boði til félagsfunda í samræmi við samþykktir sjóðanna og atkvæðisréttur sjóðfélaga á félagsfundi fari eftir áunnum og framreiknuðum iðgjöldum sjóðfélaga eftir nánari ákvæðum í samþykktum sjóðanna …“
Ég velti fyrir mér hvernig á því stendur að þetta hafi ekki þegar verið gert. Af hverju skyldi nokkurn tíma vera komin upp sú staða í lífeyrissjóðunum að þeir sem eiga þá skuli ekki sjálfir vera aðalstjórnendur þeirra?
Virðulegi forseti. Við höfum gjarnan séð hvernig það er þegar fjárhirslurnar eru úttroðnar af peningum þar sem hreinlega út úr flóir. Þá er afskaplega eftirsótt að komast að þeim kjötkötlum. Hér á árum áður var nú svo — við erum með lífeyrissjóðskerfi sem er sett á laggirnar í kringum 1969 — að það var ýmislegt öðruvísi sem fólk fékk að heyra og markmiðin sem virtust vera með tilurð lífeyrissjóðskerfisins á þeim tíma. Á þeim tíma var það líka svo að hér ríkti þessi svokallaða húsbóndaregla, húsbóndaábyrgð, öðru nafni vinnuveitendaábyrgð, þar sem vinnuveitendur báru í rauninni allt öðruvísi ábyrgð en þeir gera í dag. Ef starfsmaður hafði orsakað einhvern skaða eða eitthvað slíkt þá lenti það oftar en ekki á vinnuveitandanum sjálfum. Ef ég skil það rétt, miðað við það sem maður hefur fengið að heyra í gegnum tíðina, þegar maður er að reyna að kynna sér þessi mál til hlítar svo að maður viti að einhverju leyti um hvað maður er að tala, þá er þetta búið að vera núna. Þessi húsbóndaábyrgð, þessi vinnuveitendaábyrgð, hún er ekki lengur við lýði.
Atvinnurekendur eiga ekkert erindi inn í lífeyrissjóðina okkar, ekki neitt. Þeir geta verið í sínum eigin lífeyrissjóðum og séð um þá en þeir eiga ekkert erindi inn í hina almennu lífeyrissjóði.
„b. stjórnir lífeyrissjóða séu kosnar ár hvert á ársfundi sjóðs,
c. stjórnarmenn og framkvæmdastjórar í lífeyrissjóðum megi ekki eiga eignarhlut eða stunda viðskipti fyrir eigin reikning í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðurinn á hlut í eða í þeim fyrirtækjum sem sjá um fjárfestingar fyrir hönd lífeyrissjóðs …“
Hvers vegna skyldi þessi liður vera kominn inn, virðulegi forseti? Vegna þess að hann er hreinlega til að koma í veg fyrir hrein og klár innherjaviðskipti. Við vitum dæmi þess að einstaklingar, sem hafa haft tögl og hagldir í þessum risastóru peningum, hafa einfaldlega látið kaupa í fyrirtækjum og keypt síðan sjálfir um leið og markaðsvirði fyrirtækjanna rauk upp, eðli málsins samkvæmt því að í þau var sett fullt af milljörðum. Þá kom viðkomandi einstaklingur jafnvel og keypti slatta af hlut og græddi fullt af peningum. En hann stýrði því sjálfur. Þetta heitir spilling, virðulegi forseti. Þetta heita hrein og klár innherjaviðskipti sem viðkomandi hefur í rauninni skapað sér sjálfur.
C-liður þessarar þingsályktunartillögu kemur í veg fyrir að þetta yrði gert ef hún nær fram að ganga. Ég er reyndar að mæla fyrir henni í fjórða sinn því að einhverjum virðist vera mikið í mun að halda ástandinu óbreyttu.
Í d-lið kemur fram að Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands haldi skrá um fjárhagslega hagsmuni og trúnaðarstörf stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða.
Í e-lið er talað um að Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafi eftirlit með því hvort hagsmunir stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða samrýmist þeim reglum sem gilda um störf þeirra.
Hér er verið að reyna að tryggja ákveðið eftirlit, ákveðið aðhald, koma í veg fyrir að um okkar stóru sjóði, sem telja nú á sjöunda þúsund milljarða króna í eignum og fjármunum, sé gengið af léttúð.
Í greinargerð með þingsályktunartillögunni kemur einmitt fram að ég hef áður mælti þrisvar sinnum fyrir þessu máli og er að gera það í fjórða sinn núna.
Með tillögu þessari er lagt til að Alþingi álykti að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga sem hafi það að markmiði að auka lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Við erum að tala um að ákvæðið feli það í sér að tryggja sjóðfélögum sjálfum aukið vald í málefnum sem varða lífeyrissjóðina og þeirra sjóði, málefni sem beint varða þá sjálfa og þá hagsmuni sem þeir hafa af því að vernda það sem lögþvingað hefur verið tekið af þeim í gegnum lífeyrissjóðina í hvert einasta skipti sem þeir hafa fengið útborgað.
Ég ætla kannski ekki endilega að fara mikið meira í greinargerðina en ég hvet ykkur endilega til að kynna ykkur málið. Eftir kjarasamningana vorið 1969 hafa stjórnir lífeyrissjóðanna almennt verið skipaðar til helminga af Samtökum atvinnulífsins fyrir hönd launagreiðenda og af viðkomandi stéttarfélagi, en án aðkomu hins almenna sjóðfélaga.
Ég er í rauninni búin að koma lítillega inn á það sem stendur hér og mig langar bara að benda á að það er með hreinum ólíkindum að vera lögþvingaður til að greiða af laununum sínum ákveðnar prósentur í sjóð sem er svokallaður samtryggingarsjóður, að við skulum ekkert hafa um það að segja nánast hvernig um hann er gengið, hvernig um hann er hugsað og, eins og kemur fram í fleiri málum sem á eftir að mæla fyrir, hvernig eignarréttur okkar á þessum sjóðseignum okkar er algerlega, gjörsamlega fótum troðinn í nafni samtryggingar.
Hvers vegna fær fullorðið fólk, sem þiggur lífeyrisgreiðslur núna samkvæmt lífeyrissjóðseignum sínum, ekki að njóta þess hvað það er búið að greiða alla sína ævi? Af hverju fá ekki eftirlifandi börn og afkomendur og erfingjar ekki að njóta ávaxtanna sem viðkomandi er búinn að vera að leggja á sig í gegnum allt lífið? Af hverju hverfur mesti hlutinn af því bara í hítina, virðulegi forseti? Við köllum þetta hreina og klára eignaupptöku vegna þess að þrátt fyrir þessi stóru markmið um að ákveðnar kynslóðir, eins og við núna, eigi að sjá um komandi kynslóðir — við megum bara ekki skerða þennan lífeyrissjóð. Áttið ykkur á því að ef þið ætlið að gera eitthvað við lífeyrissjóðinn, ætlið að láta hann vera erfanlegan og ætlið að láta einstaklinginn sem er búinn að borga lögþvingað í sveita síns andlits í þennan lífeyrissjóð alla sína ævi, ef þið ætlið að fara að láta hann fá það sem hann hefur lagt í sjóðinn, nú þá bara fer þetta allt á höfuðið. Það eru skilaboðin sem við fáum að heyra. En þau eru ósönn. Það kemur alltaf maður í manns stað, það er ekki flóknara heldur en það. Það eru um 200 milljarðar kr. á ári sem flæða frá launþegum inn í þessa sjóði. Þeir þurfa að fjárfesta fyrir 17–20 milljarða kr. á mánuði. Yfirbygging þeirra og hvernig stjórnendur þessara sjóða hafa valsað um fjármuni, fjármuni sem þeir eiga ekkert í, er með slíkum ólíkindum að manni verður hreinlega bara orða vant.
Við vissum að það voru vel yfir 20 milljarðar, yfirbyggingin hérna á Íslandi fyrir tveimur, þremur árum síðan. Yfir 20 milljarðar. Við vitum að af einhver kemst að þessum kjötkatli þá bítur hann svoleiðis fast, þá hangir hann svo fast á roðinu að það verður illmögulegt að slíta hann af roðinu nema gómarnir fylgi með. Svoleiðis er nú það. Það er alltaf gott að komast í gullkistu annarra og maka krókinn á erfiði annarra, í gegnum starfsævi einhvers allt annars en manns sjálfs og vera samt ekki klárari en að það þurfi að ráða erlenda sérfræðinga til að fjárfesta fyrir sjóðina því að þeir treysta sér ekki til að gera það sjálfir, margir hverjir.
Virðulegi forseti. Ég hvet ykkur til að lesa þetta. Ég ætla ekki að eyða tímanum í að lesa þetta fyrir ykkur því að ég veit að þið hafið öll gaman af að lesa þetta. Farið bara inn á Alþingi.is. Þar eru allir þingmenn og þar er hægt að finna frumvörpin okkar, þar er hægt að finna þingsályktunartillögur okkar, þar er hægt að sjá hverjir sendu inn umsagnir. Þar er hægt að fylgjast með. Alþingisvefurinn er góður vefur. Hann er einfaldur, það er þægilegt að nota hann fyrir þá sem treysta sér til þess yfir höfuð að fara á vefinn.
Núna mun ég vísa þessu góða máli til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og vona svo sannarlega að svona réttlætis- og sanngirnismál, sem felst hreinlega í því að þeir sem eiga eigi sjálfir að koma að því í meiri hluta að stýra þessum sjóðum. Ég er að vona að maður þurfi ekki að mæla fyrir þessu í fimmta sinn, virðulegi forseti.
Hvað liggur að baki hjá stjórnvöldum sem koma í veg fyrir að svona lagað nái fram að ganga þegar á móti kemur 72. gr. stjórnarskrár um eignarrétt? Hvort skyldi nú vega þyngra, lög um lífeyrissjóði eða sjálf stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944?
Virðulegi forseti. Ég veit að það er bannað að veðja hér í ræðustól Alþingis en ég veðja samt á stjórnarskrána.