aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum.
Virðulegur forseti. Ég er meðflutningsmaður á þessari tillögu til þingsályktunar um aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Það sem ég vil bara segja er að það að sjóðfélagar fari ekki með æðsta vald í málefnum lífeyrissjóða, m.a. að stjórn lífeyrissjóða sé ekki kosin af félagsmönnum, sjóðfélögum eingöngu, er algjört hneyksli að mínu mati. Það sýnir hvers konar samfélagi við búum í.
Það að ekki skuli vera búið að breyta þessu kerfi fyrir lifandis löngu sýnir ótrúlegt kjarkleysi hjá stjórnvöldum og þessari stofnun hér. Þetta virðist vera eitt af þessum kerfum sem ekki er hægt að breyta, hvort sem það er kvótakerfið eða önnur kerfi sem er búið að koma hérna á. Núverandi kerfi var komið á fót eftir kjarasamninga vorið 1969, sama ár og ég fæddist. Það var gert þannig að stjórnir lífeyrissjóðanna skyldu almennt skipaðar til helminga af Samtökum atvinnulífsins fyrir hönd launagreiðenda og af viðkomandi stéttarfélagi. Þetta kerfi er enn við lýði.
Núna, 52 árum seinna, er sama kerfi við lýði. Það að rökin skuli vera þau að launagreiðendur hafi ávallt haft fulltrúa í stjórnum lífeyrissjóðanna, að það eigi sér sögulegar skýringar og grundvallist í upphafi á húsbóndaábyrgðinni — ja, húsbóndaábyrgðin er hugtak í skaðabótarétti í dag varðandi ábyrgð vinnuveitenda. Sú húsbóndaábyrgð sem þarna er á sér sennilega rætur í vistarbandinu. Í vistarbandinu skráðu menn sig á býli og þar var húsbóndaábyrgð. Bændur þurftu að ábyrgjast að fólkið sem var skráð á býlið í vistarband hefði nóg að bíta og brenna.
Það að við skulum enn þá vera í fyrirkomulagi sem er sennilega arfur af þessu er algjört hneyksli. Að gagnsæi og lýðræði skuli ekki vera komið varðandi lífeyrissjóðina, sem varðar eftirlaun starfsmanna, er eitthvað sem er alveg með ólíkindum og er ekki hægt að færa rök fyrir með nokkrum einasta hætti, nema þeim að kerfið sjái um sína. Þarna á bak við eru sérhagsmunir sem er verið að verja. Það er ekkert annað sem er þarna á bak við.
Það að fulltrúar atvinnulífsins séu í stjórnum þessara lífeyrissjóða hefur bara ekkert með það að gera. Það skiptir engu máli. Ég er kannski að taka of mikið upp í mig en þeir eru þá að gæta sinna eigin fyrirtækja. Lífeyrissjóðir eiga að gæta hagsmuna sjóðfélaga og engra annarra. Hverjir eru bestir í að gæta hagsmuna sjóðfélaga? Jú, það eru sjóðfélagarnir sjálfir. Það þarf ekki einhverja yfirstétt sem veit betur, sem fer með húsbóndavald eða húsbóndaábyrgð eða hvað við köllum það, til að vita hvernig á að fjárfesta í þessum sjóðum. Fjárfestingarnar eru ekkert smáræði. Þetta eru 17–20 milljarðar á mánuði, alls 200 milljarðar á ári. Þetta eru gríðarleg völd og þetta eru völd sem fulltrúar atvinnulífsins og fulltrúar stéttarfélaga vilja ekki láta frá sér.
Ég get ekki orða bundist yfir því að stéttarfélög landsins skuli vera að taka þátt í þessu bixi. Mér vitanlega hafa þau ekki komið fram með kröfu um að lýðræði verði aukið, að völdin verði færð til sjóðfélaganna þar sem þau eiga heima og að þeir fari með æðsta vald. Ég skora á stéttarfélögin að taka þetta mál upp af alvörukrafti og að séð verði til þess að sjóðfélagar fari með þetta æðsta vald og hagsmuna þeirra verði gætt í framtíðinni.
Það er annað sem þetta leiðir líka af sér en það eru svokölluð innherjaviðskipti. Það er verið að fjárfesta með gríðarlegum fjármunum. C-liður tillögunnar kemur inn á það að stjórnarmenn og framkvæmdastjórar í lífeyrissjóðum megi ekki eiga eignarhlut eða stunda viðskipti fyrir eigin reikning í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðurinn á hlut í eða í þeim fyrirtækjum sem sjá um fjárfestingar fyrir hönd lífeyrissjóða. Þetta er svo sjálfsögð regla að árið 2022 á varla að þurfa að vera með þingsályktunartillögu þar sem þetta er fært í lög. Það að stjórnarmenn lífeyrissjóða séu að stunda viðskipti á hlutabréfamarkaði á sama tíma og þeir eru að fjárfesta fyrir tugi milljarða, 200 milljarða á ári, er algjört hneyksli.
Ég segi bara: Ég get ekki orða bundist yfir þessu og hvað þá að verið sé að mæla fyrir þessu máli í fjórða eða fimmta sinn, Ég skora á verkalýðsfélögin og almenning allan að taka undir þessa tillögu og skila inn umsögnum. Ég vonast til þess að við getum kannski fengið umsagnir eins og hafa komið í blóðmeramálinu, sem er mjög mikilvægt mál líka, og þær verði a.m.k. yfir 100. Þetta er það mikilvægt mál fyrir lífsafkomu eldra fólks og þeirra sem greiða í sjóðinn í dag og þeirra sem eiga að njóta þessara réttinda í framtíðinni.
Þetta er allt í nafni aukins lýðræðis og aukins gagnsæis. Hver ætti svo sem að vera á móti því, nema þeir sem hafa hagsmuni af því að það verði ekki aukið lýðræði og ekki aukið gagnsæi?