152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum.

49. mál
[18:48]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þeim sem mæltu, hv. þingmönnum. Allt ber að sama brunni í þessu forna danska húsi sem var reist og teiknað af dönskum arkitekt seint á 19. öldinni. Manni finnst stundum eins og okkur sem stöndum hér og störfum beri að laga okkur að húsinu frekar en húsinu beri að laga sig að okkur. Þetta eru gömul sjónarmið og við erum hérna til þess að breyta gömlum sjónarmiðum í fersk og ný sjónarmið. Það sem hér hefur verið um rætt, vasapeningafyrirkomulag eldri borgara sem er auðvitað fyrir neðan allar hellur, þeir eru sviptir fjárræði og sjálfræði og gefið einhvers konar álfræði eða kálfræði, er partur af því sama og hér er um rætt með lífeyrissjóðina, sjóðina sem hinar stritandi vinnandi stéttir þessa lands eru látnar samkvæmt lögum leggja fyrir sér til lífeyris á efri árum. Hvað er þetta? Hvers vegna látum við þetta viðgangast ár eftir ár? Hvers vegna er hv. þm. Inga Sæland að mæla fyrir þessum hlutum í þriðja, fjórða og fimmta sinn, þetta sem heitir á gamla herraþjóðarmálinu „selvfølgelighed“. Hvað er þetta? Jú, þetta er það sem Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, blessuð sé minning hans, kallaði þrælslund Íslendinga. Það er þessi undirgefni við hið æðra vald, upphaflega hið erlenda vald sem menn þurftu að lúta hér gegnum myrkar miðaldir eftir að menn töpuðu sjálfstæðinu og sjálfstraustinu. Og hvað þarf til að þetta breytist? Við erum búnir að ná, við skulum segja, völdum yfir okkar eigin landi, fyrir 75 árum eða hvað það nú var, en sjálfstraust er eitthvað sem maður tekur úr kosmósinu, úr alheiminum, og tileinkar sér.

Nú ætla ég að skora á þá sem hér hlusta, ekki bara í þessum sal heldur sitja heima við viðtækin, þá eldri borgara þessa lands sem er misboðið, að taka nú allir sem einn utan úr geimnum það sjálfstraust sem þarf til að endurheimta sjálfræði sitt og sjálfstæði og eignarrétt á lífeyri sínum og lífeyrissjóðum og taka völdin yfir þessum hlutum og yfir þessu sem varðar þeirra kjör, þeirra líf og þeirra eftirlaun. Það er í rauninni bara spurning um hugarfar sem þarf að eiga sér stað. Það eru til samtök eldri borgara, félag eldri borgara og landssamtök af ýmsum toga. Það eru þúsundir og tugþúsundir manna og kvenna hér á Íslandi sem hafa til þess fullt „átoritet“ og vald að taka sína eigin mál, sín eigin fjármál, í sínar eigin hendur.

Það er einn flokkur á Alþingi sem berst fyrir þessum rétti þessa hóps. Leiðtogi hans er hér að mæla fyrir hverju málinu á fætur öðru og heitir frú Inga Sæland, hv. þingmaður. Við sem sitjum í þessum sal tilheyrum þessum flokki, allt frá hæstv. forseta að hv. þingmanni og oddvita Norðvesturs, Reykjavík suður, Reykjavík norður og Reykjavík norðvestur. Það vantar einn úr þingflokki Flokks fólksins en þar með er upp talinn sá fjöldi þingmanna sem nennir að sinna þessu og sitja undir þessu.

En ég segi enn og aftur: Látum ekki þrælslundina sem Jónas Kristjánsson talaði og skrifaði um með háðstón verða okkar viðvarandi örlög. Tökum þetta, sameinumst um að taka það sem okkur ber og það sem við eigum og höfum réttilega lagt fyrir og ráðstöfum því eins og okkur best hentar, eins og við treystum okkur til. Punktur. Punktur.