152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum.

51. mál
[18:53]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Virðulegur forseti. Hér er enn ein þingsályktunartillagan sem ég mæli fyrir, réttlætismál, sanngirnismál og sjálfsagt mál, þingsályktunartillaga um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum. Flutningsmenn með mér eru þingflokkur Flokks fólksins, hv. þingmenn Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson. Þingsályktunartillagan hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram lagafrumvarp sem kveði á um eftirfarandi:

1. Ríki og sveitarfélögum verði skylt að útvega öldruðum, sem hafa gengist undir færni- og heilsumat, dvalar- eða hjúkrunarrými eigi síðar en 60 dögum eftir að niðurstöður mats um að viðkomandi eigi rétt á slíku úrræði liggja fyrir.

2. Færni- og heilsumat skuli gefið út eigi síðar en 10 dögum eftir að umsókn um það berst.

3. Öldruðum einstaklingum, sem dvalist hafa lengur en 10 daga á sjúkrahúsi án sérstakrar meðferðar, verði útvegað dvalar- eða hjúkrunarrými.

4. Maki eða sambúðarmaki heimilismanns á stofnun fyrir aldraða skuli, án tillits til þess hvort hann hafi gengist undir færni- og heilsumat, eiga þess kost að dvelja á stofnun ásamt heimilismanni. Viðkomandi öðlist þá sjálfstæðan rétt sem heimilismaður á stofnun fyrir aldraða.

Ráðherra leggi fram frumvarp þessa efnis á haustþingi 2022.“

Virðulegi forseti. Í greinargerð með þessari þingsályktunartillögu, sem ég legg hér fram í fjórða sinn svo til óbreytta, segir:

„Þeim sem bíða eftir hjúkrunarrýmum fjölgaði um 60% á landsvísu á milli janúar 2014 og janúar 2018. Á sama tíma fjölgaði þeim sem bíða þurftu lengur en 90 daga eftir hjúkrunarrými um 35%. Frá árinu 2014 til ársins 2018 lengdist meðalbiðtími eftir hjúkrunarrými úr 91 degi í 116 daga.“

Ég ætla ekki að fara að tala um allar þessar tölur en mig langar að nefna af hverju Flokkur fólksins kallar ítrekað eftir bót og betrun fyrir fullorðið fólk. Það er einfaldlega vegna þess að það er þörf á því. Og mér þykir afskaplega dapurt ef eini lögblindi einstaklingurinn á Alþingi Íslendinga, ásamt þingflokki sínum, kemur auga á það en það er þörf á þessu úrræði. Við höfum talað um fráflæðisvanda, sem mér finnst vera lítilsvirðandi hugtak um útskriftarvandann sem hefur ríkt á Landspítala þar sem yfir hundrað eldri borgarar voru látnir liggja hist og her og tvist og bast um spítalann vegna þess að ekkert búsetuúrræði var fyrir þá löngu eftir að þeir voru tilbúnir í útskrift, löngu eftir að ekkert var hægt að gera fyrir þá á Landspítala, þrátt fyrir að allir viðurkenndu það. Stjórnendur Landspítalans óskuðu einskis frekar en að fá fleiri rými til að geta tekið á móti fleiri sjúklingum sem þurftu aðstoð og ráðamenn vissu vel og viðurkenndu að þetta væri líklega langdýrasta úrræðið sem til væri á Íslandi, að halda stórum hópi eldra fólks sem tæki rými inni á Landspítala. En svo er framkoman og svo er lítilsvirðingin algerlega taumlaus að þetta hefur verið látið viðgangast ár eftir ár og vandinn hefur einungis vaxið.

Það sem hæstv. fjármálaráðherra hefur haft til málanna að leggja er að fórna höndum og segja að öldruðum fjölgi allt of mikið. Við séum frísk lengur og okkur fjölgi ofboðslega mikið og þetta eigi eftir að sliga ríkiskassann ef ekkert verði að gert. Það mætti kannski segja að ef við fengjum að ráða sjálf yfir lífeyrissjóðunum okkar, eins og ég var að mæla fyrir áðan, myndum við ekki svo mikið sliga allt og alla þegar við værum orðin fullorðin. En við eigum rétt á því að fá þjónustu og það er dapurt að vita að fullorðnu fólki sem þarf að fá læknishjálp er hreinlega neitað um hana. Þú ert orðinn of gamall, vinur minn. Það tekur því ekki að vera að lappa lengur upp á þig. Þú ert bara byrði á samfélaginu. Kennitalan þín er ekki hagstæð því að þú greiðir ekki lengur skatta.

Virðulegi forseti. Ég á yndislegan föður sem er að verða 92 ára gamall. Fyrir tæpum tveimur árum sótti ég hann heim til Ólafsfjarðar af því að hann gat ekki lengur búið einn. Við gerðum okkur ekki grein fyrir því, sem vorum í burtu frá honum, að hann hefði þurft að fá aðstoð okkar mun fyrr, að hann hefði þurft að láta einhvern grípa inn í fyrr og taka utan um sig til að vernda og hjálpa og veita það öryggi og þá hlýju sem hann þurfti á að halda. Pabbi minn vill hvergi annars staðar bera beinin en heima á Ólafsfirði. Hann hefur ekki beðið í 90 daga eða 100 daga eða 200 daga eða 500 daga, hann hefur beðið í yfir 700 daga eftir því að fá að komast inn á hjúkrunar- og dvalarheimilið Hornbrekku á Ólafsfirði, allan þennan tíma. Hann var spurður síðast í fyrradag: Ási, segðu mér eitt, hvernig finnst þér að vera í Reykjavík? Minn góði faðir sagði: Æ, mér finnst það nú ekkert sérstakt. Hann er tvívegis búinn að fá bréf frá færni- og heilsumatsnefnd á Akureyri sem segir að hann eigi rétt á hvíldarinnlögn, fyrst árið 2019, aftur árið 2020, haustið sem ég sótti hann heim til Ólafsfjarðar, en hann hefur ekki enn fengið þá hvíldarinnlögn. Ég veit ekki hverju þetta sætir, virðulegi forseti. Þessi gamli maður hefur borgað sína skatta og skyldur heim í fallega fjörðinn sinn alla sína ævi meira og minna og hann vill hvergi annars staðar vera. Hér í Reykjavík segist hann bara sjá hús og bíla en heima sér hann fjörðinn sinn og fjöllin og fallega vatnið þar sem hann hefur verið við veiðar frá því að hann var lítill strákur. Hver myndi ekki vilja taka utan um foreldra sína, sem eiga ákveðna ósk, og maður veit að eiga ekki eftir langa lífdaga?

Virðulegi forseti. Oft og tíðum, og ekki oft og tíðum heldur næstum því alltaf, sjáum við að þetta blessaða kerfi er ekki mennskt. Við erum kennitala, við erum tala á blaði, við erum ekki einstaklingar. Það hefur gengið það langt að hjón hafa verið aðskilin, hefur verið stíað í sundur, hjón sem hafa búið saman alla sína ævi, annað þeirra veikist og það er flutt hreppaflutningum í annað sveitarfélag. Við fengum sögu af því fyrir ríflega tveimur eða þremur árum — fyrirgefið, forseti, það gæti verið að það sé lengra síðan, maður er orðinn svo ruglaður því að tíminn líður svo hratt hér á þingi, það er svo gaman hérna, það gætu þess vegna verið fjögur ár síðan — að kona, þetta varð nú blaðamál, var send alla leið austur til Húsavíkur því að þar var hægt að hola henni niður, sjáið þið til, en maðurinn hennar bjó hér fyrir sunnan. Það er ansi löng leið að fara þegar þig langar að vera hjá konunni þinni og halda í höndina á henni, og ert háður samskiptum við ástina þína í gegnum allt lífið, að þurfa að fara frá suðri alla leið austur á Húsavík. Þess vegna er þessi liður inni í tillögunni að gefa maka, þeim sem er kannski ekki enn kominn í þá stöðu að þurfa að fá einhver úrræði á öldrunarheimili eða í hjúkrunarrými, kost á að fylgja ástvini sínum án þess að stía þeim í sundur á síðustu æviárunum. Þetta er mannvonskukerfi, svona smíðað kerfi sem tekur ekkert tillit til tilfinninga eða til einstaklingsins.

Ég segi: Hvert erum við komin þegar ég mæli hér ítrekað fyrir sanngirnis- og réttlætismálum sem gera ekkert annað en að gleðja og bæta samfélagið fyrir alla? Við erum ekki sérhagsmunagæsluafl í Flokki fólksins. Við höfum gjarnan sagt að það séu önnur öfl sem geti séð um það. Við þurfum ekki að vera talsmenn þeirra ríku. Þeir geta séð um sig sjálfir jafnvel þó að við viljum gera allt til að greiða götu þeirra þannig að þeim gangi vel. Svo framarlega sem þeir eru ekki að svindla á öllu saman, svo framarlega sem hlutirnir ganga eðlilega og vel fyrir sig, munum við standa með öllum vegna þess að við erum Flokkur fólksins. Við segjum: Fólkið fyrst, svo allt hitt. Við stöndum með öllum en fyrst og fremst er Flokkur fólksins talsmaður þeirra sem þurfa á hjálp að halda og það er alveg á hreinu, virðulegi forseti, að eldri borgarar og öryrkjar og fátækar fjölskyldur þurfa á hjálp Flokks fólksins að halda. Það er með ykkar atfylgi í síðustu kosningum sem þið eigið orðið þennan góða her, sex manna Flokk fólksins, sem mun í engu gefa eftir af kröfunum um að gefa öllum betra og réttlátara líf, betra og réttlátara samfélag fyrir okkur öll en ekki bara sum.

Ég segi: Við verðum að koma í veg fyrir að öldruðum sé bara fleygt einhvers staðar út í einhvern biðsal, á biðstofu eða geymd einhvers staðar, bara eins og eitthvert dót, bara geymd einhvers staðar, og framkoman sé lítilsvirðandi. Tryggjum fólkinu okkar áhyggjulaust ævikvöld. Gerum lífið eins þægilegt og hægt er. Eins og hv. þm. Jakob Frímann Magnússon segir gjarnan: Gefum þeim uppskeruhátíðina sem efri árin eiga að vera. Gefum þeim eins gott líf og mögulegt er, ekki hamla, ekki þrengja að, ekki kyrkja fólk í vanlíðan. Það á ekki að vera okkar að gera slíkt. Verum góð hvert við annað. Þetta er sanngirnis- og réttlætismál. Það vefst fyrir stjórnvöldum að koma með þau búsetuúrræði og það rými sem þarf að vera til staðar. Það vefst fyrir stjórnvöldum. Það vantar vinnuafl til að sinna þessum störfum. Hvers vegna? Jú, við tímum ekki að borga almennileg laun. Við þurfum að laða fólk að þessum störfum. Við þurfum að byggja allt sem þarf að byggja til að geta boðið upp á þessi búsetuúrræði og fyrst og síðast eigum við aldrei að stía ástvinum í sundur þegar þau vilja ekkert gera annað en að haldast í hendur þar til dauðinn aðskilur.

Virðulegi forseti. Að lokum ætla ég að vísa þessari þingsályktunartillögu um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum til hv. velferðarnefndar.