152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum.

51. mál
[19:06]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég er stoltur meðflutningsmaður þessarar tillögu um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum. Ég tel að um sjálfsagt mannréttindamál sé að ræða og ég get sagt ykkur af hverju. Ef við horfum bara á síðasta töluliðinn, 4. töluliðinn, þar sem Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram lagafrumvarp sem kveði á um að maki eða sambúðarmaki heimilismanns á stofnun fyrir aldraða skuli, án tillits til þess hvort hann hafi gengist undir færni- og heilsumat, eiga þess kost að dvelja á stofnun ásamt heimilismanni en viðkomandi öðlist þá sjálfstæðan rétt sem heimilismaður á stofnun fyrir aldraða, er verið að koma í veg fyrir að eldri borgarar sem dveljast á stofnun fyrir aldraða verði þvingaðir til sambúðarslita þegar þeir eiga þess ekki kost að vera samvistum við maka eða sambýlismann á heimili sínu.

Ég verð nú bara að segja að það er þyngra en tárum tekur að maki eldri borgara sem hefur kannski búið áratugum saman með lífsförunauti sínum — að fólk sé þvinguð til sambúðarslita af því að makinn þarf að dvelja á dvalarheimili. Það er með hreinum ólíkindum að svona skuli viðgangast. Það er hreint og klárt mannréttindamál að tryggja að íbúar á öldrunarstofnunum geti verið áfram í samvistum við maka sinn. Við getum rétt ímyndað okkur lífsgæðin sem fólk fær með því að vera saman á öldrunarstofnun miðað við það að fara í gegnum það álag sem fylgir því að slíta sambúð af því að makar geta ekki verið saman þegar annar fer á öldrunarheimili. Þetta eru svo sjálfsögð mannréttindi og það er þyngra en tárum tekur að ekki skuli vera búið að tryggja þessi réttindi. Það er með hreinum ólíkindum.

Varðandi aðra þætti sem hér eru undir, að öldruðum verði útvegað dvalarheimili eftir að hafa gengist undir færni- og heilsumat, og eigi síðar en 60 dögum eftir að niðurstöður matsins liggja fyrir, eru það líka sjálfsögð mannréttindi í staðinn fyrir að þurfa að bíða á biðlistum dögum saman, mánuðum saman og jafnvel árum saman. Þetta er með hreinum ólíkindum. Hér er um sjálfsögð félagsleg réttindi að ræða, mannréttindi sem ríki sem vill kalla sig velferðarsamfélag á að standa fyrir.

Ég get tekið dæmi um stöðu málaflokksins og varðandi biðlistana. Eins og kemur fram í greinargerðinni létust 114 einstaklingar á biðlistum eftir að komast í hjúkrunarrými árið 2014. Árið 2015 voru þeir 141, árið 2016 voru 178 á biðlista eftir hjúkrunarrými, árið 2017 voru það 183, 2020 létust 118 einstaklingar sem voru á biðlista eftir hjúkrunarrými. Þetta er staðan í dag. Yfir 100 manns sem eru á biðlista eru að deyja á ári og hafa aldrei fengið að komast í hjúkrunarrými. Það má jafnvel færa rök fyrir því að þetta sé ótímabær dauðdagi, að fólk fái ekki þá þjónustu og stuðning sem það á rétt á í lífinu og það leiði til andláts. Ég veit að það er engin rannsókn fyrir hendi en við getum rétt ímyndað okkur að vera á biðlista og komast aldrei að og hvernig lífið myndi breytast og lífsgæði myndu breytast hjá fólki sem kemst á hjúkrunarrými.

Öldruðum fjölgar, það er vissulega rétt. Ég á sæti í fjárlaganefnd og það er fjallað um þetta þar og komið inn á þetta í fjárlagastefnunni en það á ekki að líta á það sem kostnað. Það eru lífsgæði og merki um gott samfélag, ríkt samfélag og velferðarsamfélag að öldruðum fjölgi og fólk lifi lengur og það á að vera markmið í sjálfu sér. Það er mikilvægt að við sem samfélag búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld og að uppskeruhátíð lífsins verði að gleðidögum en ekki að dögum á biðlista sem leiðir til sambúðarslita þegar annar makinn þarf á hjúkrunarheimili að halda og fer á hjúkrunarheimili. Ég tala ekki um að hann á ekki að þurfa að bíða á biðlistum. Um það fjallar þetta mál. Þetta er sjálfsagt mannréttindamál og það er mikilvægt að það fái góðan framgang í nefnd og að heilbrigðisráðherra undirbúi og leggi fram lagafrumvarp sem efni þess kveður á um.