152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum.

51. mál
[19:11]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég er stoltur af flutningsmönnum þessa góða máls sem hér er til umræðu sem fylgt hefur verið úr hlaði með sorgarsögum um ótrúlegt dáðleysi og einkum þó virðingarleysi fyrir þeim sem hafa unnið alla sína tíð, greitt alla sína skatta, unnið sinni heimabyggð gagn í áratugi og fá síðan hvergi inni þegar kemur að starfslokum og, við skulum segja þegar ævilokin taka að nálgast. Eða eins og hv. þingmaður lýsti því hér, að 92 ára maður fær hvergi inni, er búinn að bíða í yfir 700 daga eftir að sveitarfélagið geti boðið honum dvöl. Og svarið er aftur og aftur: Nei, því miður. Svarið er nei.

Að sambúðarslit séu hönnuð af samfélaginu og hjón til margra ára og áratuga skuli vera aðskilin vegna þess að annað hjóna þarf að komast í umönnun og þá er það bara flutt nauðungarflutningum þvert yfir landið. Er þetta sæmandi velferðarþjóð? Bara alls ekki.

En þessar sorgarsögur spegla ákveðið viðhorf. Þær spegla kannski helst að á meðan menn, eins og þeir sem lýst er hér, eru búnir að bíða í yfir 700 daga eftir hvíldarinnlögn, er ekki bara verið að bíða eftir að viðkomandi öðlist hvíldina hinstu? Er það ekki ódýrasta lausnin? Og þá verði hugsanlega hægt að sjá af kannski tveimur fermetrum í grafreit. Eða er það tilviljun að tiltekið virðulegt sveitarfélag hér hefur ákveðið að planta eldriborgaraíbúðum sínum við hliðina á háspennustöð, sem almennt er ekki talin ávísun á mikla heilsubót, þvert á móti? Er verið að reyna að stytta líf fólks eða koma sér undan óþægilegum útgjöldum þeirra sem eldri eru orðnir með einhvers konar vinnulagi af þessum toga? Ég vona að svarið við þessu sé nei. En altént blasir við að það er engan veginn sæmandi það sem í boði er. Og jú, jú, allt kostar þetta. Það kostar að senda einstaklinga inn á sjúkrahús eða inn á heimili sem kallar á umönnun.

Það er kannski gráglettni örlaganna að þeir sem voru afskrifaðir fyrir kannski 20 árum og áttu að vera á leiðinni í hvíldina hinstu og þurftu þar með ekki að taka pláss frá hinum, eru kannski ekkert að fara. Og jú, jú, þjóðin er að eldast. Það sem einu sinni var sjötugsaldur er kallað fimmtugsaldur í dag. Það sem einu sinni var áttræðisaldur er sextugsaldur í dag. Það er á vissan hátt speglandi; bættur vítamínbúskapur, bættar lífslíkur, heilbrigðiskerfi, aukin þekking og vísindi leiða til þess að við þurfum bara að horfast í augu við að það að menn og konur hætti störfum um sjötugt er bara að verða úrelt viðmið vegna þess að fólk getur sannarlega komið að miklu gagni í samfélaginu og starfað áfram, hafi það til þess heilsu og þrek og á að gera það.

Viðhorfið sem hér er til umræðu er í rauninni viðhorf gamla tímans, í gamla húsinu, viðhorfið sem við þurfum að breyta, af því að við áttum okkur á því að þetta er úrelt og þetta er tímaskekkja. Þá verður það kannski gert með því að sá tveggja þingmanna þingflokkur sem var hér síðustu þrjú árin, Flokkur fólksins, varð sex manna þingflokkur, þrefaldaði sig frá því sem hann var hér innan húss úr tveimur í sex. Skyldi hann þrefalda sig næst og fara úr sex í 18 og þá kannski hafa afl til að breyta þessu með góðra manna hjálp? En það kostar fjögur ár í viðbót af biðtíma. Við höfum ekki þann tíma. Við óskum þess að hæstv. heilbrigðisráðherra taki þetta alvarlega sem hér er lagt fram í góðri trú og átti sig á því að gömlu viðhorfin eru of gömul til að þau séu okkur samboðin. Við skulum færa okkur inn í 21. öldina og þá staðreynd að hér er ekki sæmandi ástand sem við blasir. Við getum leyst úr því hratt og örugglega og við ætlumst til þess.