staðgreiðsla við innborgun í lífeyrissjóði.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóði. Með mér á málinu eru hv. þingmenn Flokks fólksins, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.
„Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram lagafrumvarp fyrir lok ársins 2022 þess efnis að staðgreiðsla skatta fari fram við innborgun í lífeyrissjóð en ekki við útgreiðslu lífeyrissparnaðar. Tryggt verði að þeim fjármunum sem breytingin skilar ríkissjóði verði varið í þágu aukinnar velferðar.“
Í greinargerð með tillögunni segir að þessi þingsályktunartillaga hafi áður verið flutt á 150. löggjafarþingi og 151. löggjafarþingi og nú er ég sem sagt að mæla fyrir henni í þriðja sinn. Tillagan er nú flutt óbreytt.
Á síðustu árum hafa eignir lífeyrissjóðanna stóraukist og námu um 6.240 milljörðum kr. í lok júlí 2021 — 6.240 milljarðar kr., hvorki meira né minna. Þetta er samkvæmt upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands og ekki skrökvar Seðlabankinn. Inngreiðslur í samtryggingarsjóði eru yfir 230 milljarðar kr. á ári. Á hverju einasta ári greiðum við, launþegar í landinu, yfir 230 milljarða kr. inn í þetta bákn, inn í þetta lífeyriskerfi. Árið 2000, fyrir 22 árum, námu eignir lífeyrissjóðanna um 80% af vergri landsframleiðslu en árið 2020 var hlutfallið komið í 194% af vergri landsframleiðslu samkvæmt hagtölum lífeyrissjóða sem birtast á vef Landssamtaka lífeyrissjóða, lífeyrismál.is. Allt þetta er hægt að skoða þar og svo miklu meira.
Það er áhyggjuefni, virðulegi forseti, hve mikil umsvif lífeyrissjóðanna eru í íslensku viðskiptalífi. Stjórnir þeirra eru skipaðar fulltrúum verkalýðsfélaga og atvinnulífsins sem síðan skipa stjórnarmenn til að sitja fyrir hönd sjóðanna í stjórnum fyrirtækja sem sjóðirnir eiga hlut í sjálfir. Þannig eru tengslin á milli eigenda fjármagnsins, sjóðfélaganna, og þeirra sem annast fjárreiður lífeyrissjóða lítil sem engin. Útkoman er sú að stór hluti íslenskra fyrirtækja er í eigu óvirkra aðila sem starfa samkvæmt lögbundinni ávöxtunarkröfu en ekki vilja sjóðfélaganna sjálfra. Undanfarin ár hafa lífeyrissjóðir sætt gagnrýni fyrir að fjárfesta í áhættusömum fyrirtækjum, greiða stjórnarmönnum ofurlaun og styðja viðskipti sem sjóðfélögum gjörsamlega blöskrar. En hvað með það? Sjóðfélagarnir hafa yfir höfuð ekkert um það að segja. Það eina sem þeir hafa að segja er að kreista út úr þeim lögþvingaða peninga til að leggja inn í þessa hít. Með því að greiða skatta af iðgjöldunum við innlögn í lífeyrissjóðina, eins og þessi tillaga ber með sér, má sporna við því að lífeyrissjóðirnir verði óeðlilega stórir miðað við stærð hagkerfisins.
Fjármuni skortir til að ráðast í nauðsynlegar úrbætur á íslensku velferðarkerfi. Getum við ekki öll verið sammála um það, virðulegi forseti? Við erum enn að skattleggja fátækt, hikum ekki við að skattleggja fátækt. Ég ætla ekki að segja „við“ því að Flokkur fólksins segir: Við munum aldrei skattleggja fátækt. Við segjum: Hættum að skattleggja fátækt. Hættum að níðast á þeim sem minnst mega sín í samfélaginu. Heilbrigðiskerfið stendur á brauðfótum. Bætur almannatrygginga duga ekki til framfærslu og bilið milli hinna ríku og hinna fátæku eykst ár frá ári. Því er nauðsynlegt að auka tekjur ríkissjóðs og nýta þær í þágu fólksins. Skattlagning við innlögn í lífeyrissjóð í stað útgreiðslu, eins og nú er, er algerlega sársaukalaus aðgerð og hún er leið til að stórauka aukatekjur ríkissjóðs, stórauka þær, og gera honum um leið kleift að styðja velferðarkerfið án þess að skerða ráðstöfunartekjur almennings.
Samkvæmt gildandi fyrirkomulagi eru iðgjöld í lífeyrissjóði og mótframlög vinnuveitenda ekki skattlögð. Þess í stað eru greiðslur úr lífeyrissjóðum til lífeyrisþega skattlagðar. Þannig er skattlagningu þeirra fjármuna sem mynda stofn lífeyrissparnaðar frestað þar til kemur að útgreiðslu þeirra. Eins og við vitum er núna tekið af okkur í lífeyrissjóð. Um leið og við fáum útborgað erum við látin greiða X krónur í lífeyrissjóð en það er ekki skattlagt heldur liggja krónurnar þarna inni þar til kemur að því að tekið er út úr sjóðnum. Vonandi er fólk þá orðið fullorðið, vonandi er það að taka úr sjóðnum vegna aldurs en ekki vegna veikinda. En auðvitað gerist það líka að mjög margir lenda í slysum, mjög margir veikjast og byrja þá að taka út úr lífeyrissjóðnum sínum. En þá er tekinn af þeim skattur. Það er tekinn af þeim skattur þegar einstaklingurinn er í raun og veru á þeim stað að hafa meiri þörf fyrir að geta litið á staðgreiðsluna sem hefur þá áður verið greidd sem ákveðinn hluta af sparnaðinum sem hann fær síðan þegar hann loksins nýtir sér það að taka út úr sjóðunum. Í staðinn fengi ríkissjóður sennilega um hátt í 70 milljörðum kr. meira í ráðstöfun í gegnum lífeyrissjóðina en hann gerir í dag. Gerir það eitthvað til, af þeim ríflega 240 milljörðum sem við erum að greiða inn í þessa sjóði á hverju einasta ári, ef við greiðum staðgreiðsluna þarna strax? Það myndi stórbæta hag margra. Flokkur fólksins er að berjast gegn skerðingum. Við erum að berjast gegn skattlagningu fátæktar. Við erum að berjast fyrir því að allir hafi fæði, klæði og húsnæði. Og hvað er betur til þess fallið, þegar verið er að tala um hvernig við eigum að nýta okkar sameiginlegu sjóði eins og lífeyrissjóðirnir eru, en að við gerum það í gegnum það kerfi sem við eigum og ættum að eiga skilyrðislaust og skuldlaust og án aðkomu og afskipta ríkisvaldsins, meira en orðið er?
Það er í rauninni ótrúlegt hvernig er lækkaður hér bankaskattur um milljarða, hvernig nánast engin veiðigjöld eru greidd fyrir að fá að sækja í auðlindirnar okkar í kringum landið, sjávarauðlindirnar okkar. Það er í rauninni hlægilegt. Það er hlægilegt hvernig gróðafyrirtæki vita varla aura sinna tal og þyrftu ansi margar peningatalningarvélar til að geta áttað sig á því hvað þau eiga mikið ef þau seldu allar eignirnar sem þau eru búin að fjárfesta í fyrir sameiginlega auðlind okkar. Það er með ólíkindum hvernig ríkisstjórnin hefur verið með grímulausa hagsmunagæslu gagnvart peningaöflum í landinu og um leið snúið blinda auganu að þeim í samfélaginu sem berjast í bökkum. Eins og núna, ekki bara eftir tveggja ára heimsfaraldur Covid heldur í þeim stríðsátökum og hörmungum sem við horfum upp á þar sem Rússar hafa ráðist inn í sjálfstætt ríki Evrópu, Úkraínu, þegar efnahagur heimsins riðar til falls á margan hátt. Verðbólgan er komin í 6,2% og þeir sem eru fátækir verða bara fátækari. Hvers vegna í veröldinni skyldum við ekki, virðulegi forseti, taka skattlagninguna strax þegar við greiðum í lífeyrissjóðina og færa með því inn í ríkissjóð hátt í 70 milljarða kr. sem um leið gætu komið í veg fyrir skattlagningu fátæktar og farið að höggva í þessar andstyggðarskerðingar, keðjuverkandi skerðingar sem bitna helst á þeim sem síst skyldi?
Hugsum okkar þegar Verslunarmannafélag Reykjavíkur sagði að afkoma þeirra hefði verið svo góð að hún væri komin yfir þann þröskuld sem hún þurfti að komast yfir til þess að hægt væri að hækka lífeyrisþegagreiðslur — jú, sannarlega hækkuðu þær og mikið var það skemmtilegt. En hvað skyldi hafa orðið um þær krónur sem sjóðfélagarnir fengu frá félaginu sínu? Það var allt hirt, meira og minna allt hirt í formi skerðinga, keðjuverkandi skerðinga bæði í félagslega kerfinu og í almannatryggingakerfinu. Þessi kerfi styðja hvort annað við að kreista og mergsjúga hverja einustu umframkrónu sem einhvers staðar síast inn þannig að það sé alveg víst að sá sem fær útborgaðar 240.000–250.000 kr. á mánuði fái ekki krónu meira og geti ekki rönd við reist. Þetta er fólkið, virðulegi forseti, sem er skattlagt fullum fetum. Góður Sjálfstæðismaður sagði við mig: Gerirðu þér grein fyrir því, Inga Sæland, að allir vilja fá að greiða skatta og leggja til samfélagsins. Það er stolt hvers manns að fá að borga skatta. Á sama tíma segi ég: Er það stolt foreldris þegar ríkissjóður kreistir skattgreiðslur af viðkomandi sem á ekki fyrir salti í grautinn og getur varla gefið börnunum sínum almennilega að borða út mánuðinn? Er það stolt þess einstaklings sem er settur í þá aðstöðu? Ég segi nei, virðulegi forseti. Það er vanlíðan á vanlíðan ofan.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þessa skattlagningu við innborgun í lífeyrissjóðina því að það segir sig eiginlega algjörlega sjálft. Við getum notað þetta fjármagn í að efla heilbrigðiskerfið, fjölga dvalar- og hjúkrunarrýmum, hætta að skattleggja fátækt, höggva í skerðingarnar og ég veit ekki hvað og hvað. Hvers vegna skyldum við ekki fá að njóta þessara ávaxta frekar en að stækka enn frekar þetta lífeyrissjóðabákn þannig að eftir tvö, þrjú ár verða ekki 6.240 milljarðar inni í sjóðunum heldur kannski 7.240 milljarðar? Hvenær er komið nóg, virðulegi forseti? Hvenær er nóg?
Að lokum vil ég vísa þessari þingsályktunartillögu til hv. efnahags- og viðskiptanefndar. Ég hef enga trú á öðru en að allir sjái tækifærin í því hversu frábært þetta mál er, þessi þingsályktunartillaga, ef þeir bara gæfu sér tíma til að lesa hana, kynna sér hana og hefðu kannski einhverjir þeirra verið með okkur í kvöld til að taka þátt og vita um hvað málið snýst.