152. löggjafarþing — 44. fundur,  1. mars 2022.

staðgreiðsla við innborgun í lífeyrissjóði.

53. mál
[20:00]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég er stoltur flutningsmaður og stuðningsmaður þessarar tillögu til þingsályktunar um staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóði. Á síðustu árum hafa eignir lífeyrissjóðanna stóraukist og námu, eins og hér kom fram áðan, 6.240 millj. kr. í lok júlí á síðasta ári samkvæmt upplýsingum Seðlabanka Íslands. Inngreiðslur í samtryggingarsjóði eru yfir 230 milljarðar á ári. Árið 2000 námu eignir lífeyrissjóðanna um 80% af vergri landsframleiðslu en árið 2020, í hittiðfyrra, var hlutfallið komið í 194% samkvæmt hagtölum lífeyrissjóðanna sem birtust á vef Landssamtaka lífeyrissjóða, lífeyrismál.is. Þetta er gríðarleg aukning, úr 80% af vergri landsframleiðslu árið 2000 í 194% árið 2020.

Það er rétt sem kemur fram í greinargerðinni að það er áhyggjuefni hve mikil umsvif lífeyrissjóðanna eru í íslensku viðskiptalífi. Tengslin milli eigenda fjármagnsins, sjóðfélaganna, og þeirra sem annast fjárreiður lífeyrissjóðanna eru lítil sem engin og útkoman er sú að stór hluti íslenskra fyrirtækja er í eigu óvirkra aðila sem starfa samkvæmt lögbundinni ávöxtunarkröfu en ekki vilja sjóðfélaga. Hérna er ákveðið vandamál í íslensku samfélagi eða viðskiptalífi og fyrirtækjaumhverfi. Áhyggjuefnið er það hve mikil umsvif lífeyrissjóðanna eru og þess vegna, af þessari ástæðu, er rétt að staðgreiðsla skatta fari fram við innborgun í lífeyrissjóði en ekki við útgreiðslu lífeyrissparnaðarins. Það eru mjög haldgóð rök fyrir því þar sem með því tæki ríkissjóður skatttekjurnar í upphafi og gæti því ráðstafað þeim á eigin forsendum í stað þess að treysta lífeyrissjóðum til að ávaxta féð. Þar sem lífeyrissjóðirnir hafa minna milli handanna í fjárfestingum þá er miklu betra að taka skattinn í upphafi. Rökin, sem ég er búinn að fara yfir, eru að það myndi minnka umsvifin aðeins. Féð myndi þá nýtast betur til nauðsynlegra úrbóta á íslensku velferðarkerfi.

Annað sem er mikilvægt að hafa í huga hérna er að þetta hefur ekki í för með sér hlutfallslega rýrnun á ávöxtun lífeyrissjóðanna, alls ekki. Þeir hafa minna milli handanna, en þegar greitt er út þá er skattfrelsi. Það er miklu eðlilegra að lífeyrissjóðurinn sem fer í fjárfestingar hafi minna milli handanna og noti þá peningana, sé búinn að borga skatta af því og noti svo fjármagnið til að fjárfesta og hafi greitt út án þess að greiða skatt. Það er líka mikilvægt fyrir ríkissjóð þar sem aukin þörf er á fjárfestingu í velferðarkerfi og heilbrigðiskerfi og t.d. mætti nýta peningana til að taka á skerðingarkerfi almannatrygginga þegar kemur að örorku- og ellilífeyrisþegum.

Hér er því um mikilvægt mál að ræða og þetta er þriðja málið sem flutt er hér í kvöld sem lýtur að lífeyrissjóðunum og sýnir enn og aftur hve mikilvægt er að heildarendurskoðun á þessu kerfi fari fram, og hún taki mið af hagsmunum sjóðfélaganna, hagsmunum ríkissjóðs, hagsmunum viðskiptalífsins og hagsmunum íslensks fjármálakerfis. Út á það gengur þetta. Við erum komin með algert, ég segi ekki algert skrímsli, en við erum komin með kerfi sem er allt of stórt í okkar litla íslenska samfélagi þegar kemur að fjárfestingu í hverjum mánuði og á ársgrundvelli. Þess vegna er mikilvægt að byrja að vinda ofan af þessu kerfi og það væri vel gert með því að staðgreiðsla skatta færi fram við innborgun en ekki útgreiðslu lífeyrissparnaðar eins og í núverandi kerfi.