staðgreiðsla við innborgun í lífeyrissjóði.
Virðulegur forseti. Háttvirtur þingheimur og þjóð sem horfir á okkur vonandi. Mig langar aðeins að leggja orð í belg. Hér í pontu steig áðan einn af fulltrúum meiri hlutans sem skammaði okkur í Flokki fólksins fyrir að vilja leggja niður samtryggingarkerfið í lífeyrissjóðunum á þeirri forsendu að það myndi hrynja. Síðan erum við að tala um núna að við ætlum að skattleggja innborganir o.s.frv. Ég ætla að setja þetta í samhengi, tala um báða hlutina í einu. Gefum okkur það að manneskja sem er með 500.000 kr. á mánuði í laun, sem eru nú ekki mjög há laun, greiði í lífeyrissjóð 75.000 kr., miðað við að það eru 15,5% sem fara í lífeyrissjóðinn við hver mánaðamót, 11,5% sem atvinnurekandi greiðir og 4% frá launþeganum. Ef borgaður er skattur af þessu sem er sirka einn þriðji myndi viðkomandi leggja 50.000 kr. á mánuði í lífeyrissjóð. Og bara til að við gerum okkur grein fyrir því hvaða tölur þetta eru skulum við gefa okkur að viðkomandi leggi í lífeyrissjóð í 40 ár, sem er ekki óeðlilegt. Hann byrjar að borga í lífeyrissjóð um 25 ára og 65 ára gamall er hann búinn að leggja í sjóðinn í 40 ár. Eftir 40 ár á 3% vöxtum á viðkomandi í lífeyrissjóðnum sínum, eftir að hafa borgað skatta, þetta er sem sagt skattfrítt, 82 milljónir. Það þýðir að á 15 árum getur hann haft 455.000 kr. á mánuði í tekjur, jafnvel meira vegna þess að hann fær vexti ofan á það sem hann á á hverjum tíma. Hann hefur hugsanlega borgað lengur en í 40 ár vegna þess að þeir sem byrja að borga 25 ára og taka ekki út lífeyrissjóðinn sinn fyrr en um sjötugt eru þá búnir að borga í 45 ár og þess vegna eru upphæðirnar enn hærri. Þetta var miðað við 3% vexti. Gefum okkur að vextir hafi verið 4% á þessu tímabili. Þá á hann 131 milljón sem gerir það að verkum að hann fær 900.000 kr. á mánuði í laun í 15 ár. Ef það voru 5% vextir á tímabilinu þá á hann 213 milljónir og munið að það eru vextir og vaxtavextir og vextir ofan á það sem við erum að tala um. Hann á þá 213 milljónir eftir 40 ára sparnað á 500.000 kr. launum á mánuði sem gerir það að verkum að hann fær 1.200 þúsund kr. á mánuði í laun í 15 ár.
Er þetta óraunhæft? Ég held ekki vegna þess að enginn lífeyrissjóður hefur fengið minna en 5% ársvexti undanfarin 15–20 ár. Ég geri ráð fyrir því að það sé ekki hægt að fá minna en 3%. Ef það þarf endilega að skilja eitthvað eftir í þessum svokallaða samtryggingarsjóði þá má alveg gera ráð fyrir því að viðkomandi einstaklingur fengi að njóta þess að fá 4% vexti og munurinn á 4% og 5% væri þá 100 milljónir sem sjóðurinn gæti þá haft í þessa svokölluðu samtryggingu og viðkomandi aðili fengi samt sem áður 900.000 kr. á mánuði. Það yrði erfanlegt því þetta gengur út á það að þetta eru peningar sem við erum búin að spara á lífsleiðinni og ósanngjarnt að þeir hverfi eins og dögg fyrir sólu og enginn fái neitt ef viðkomandi fellur frá fyrir aldur fram.