störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég hef ekki nokkra trú á því að rússneskur almenningur sé sammála stríðsrekstri stjórnvalda í Úkraínu. Hér á landi búa íbúar sem koma frá Rússlandi og Úkraínu, suma þekki ég persónulega og staðan er þannig að ástandið er mjög íþyngjandi. Það er eðlilegt að þetta fólk finni fyrir kvíða. Fordæming mín á innrás stjórnvalda í Rússlandi beinist fyrst og fremst að stjórnvöldum þar í landi, enda skil ég ekki með nokkru móti hvernig hagsmunir almennings í Rússlandi geta farið saman með þeim hörmungum sem nú dynja á úkraínskum saklausum borgurum. Við Íslendingar höfum átt samstarf við Rússland á ýmsum sviðum í gegnum tíðina. Sú breytta mynd sem nú blasir við er líkleg til að hafa neikvæð áhrif á slíkt samstarf, jafnvel um áraraðir. Ekkert kallaði á innrás í Úkraínu nema þrá þeirrar þjóðar eftir lýðræði, frelsi og mannréttindum. Fjöldi þeirra íbúa í Úkraínu sem velja nú að flýja land eykst með hverjum deginum sem líður. Viðkvæm staða þeirra blasir við.
Virðulegi forseti. Heimabærinn minn, Reykjanesbær, hefur unnið lengi með stjórnvöldum að málefnum fólks á flótta og ég vil eindregið hvetja önnur sveitarfélög á landinu til að lýsa yfir vilja sínum til að taka við fólki í neyð. Sveitarfélögin í landinu eru sterk og halda þétt utan um íbúa sína og veita öfluga þjónustu í nærumhverfinu.
Virðulegi forseti. Ég skora á alla kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum um land allt: Opnum faðminn, veitum skjól, því nú er kominn tími til þess að öll sveitarfélög á landinu stígi upp og komi til verndar.