152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

störf þingsins.

[15:25]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Rétt eins og hjá öðrum er hugur minn hjá Úkraínu, bæði þeim milljónum sem búa við erfiðar aðstæður innan Úkraínu, mörg hver að fela sig í kjöllurum, verjast sprengjuregni og jafnvel að eignast börn í neðanjarðarlestargöngum, og einnig þeirri bráðum milljón manns sem þegar hafa flúið landið, þeim milljónum sem eru að reyna að flýja landið. Það að flýja er eitthvað sem fá okkar vita hvernig er. Það að geta ekkert tekið með sér nema kannski barnið þitt og lyf. Við sem höfum starfað með fólki á flótta erum að upplifa fordæmalausa neyð. 220 milljarðar er það sem Sameinuðu þjóðirnar hafa óskað eftir til stuðnings bara til að byrja neyðarstarfið, 220 milljarðar íslenskra króna. Það er mikilvægt að við Íslendingar sem virkir þátttakendur í alþjóðasamfélaginu bregðumst fljótt og markvisst við.

Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir að veita strax 1 milljón evra til þessara mála. Það er góð byrjun en nú er komið að því að við öll, stjórnvöld, almenningur, fyrirtæki og félagasamtök, sýnum mannúð í verki, sýnum hana ekki bara í orði heldur líka á borði og sýnum að við styðjum fólkið í Úkraínu, eða eins og þau segja sjálf, með leyfi forseta: Slava Ukraini.