152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

störf þingsins.

[15:30]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Eldflaugaárás rússneska hersins á minnisvarða um fjöldamorðin í helförinni er stórfurðuleg árás því að rússneska þjóðin ætti svo sannarlega að halda í og muna helförina og það sem gerðist þar. Við megum ekki láta söguna endurtaka sig og verðum að muna að stríð með tilheyrandi ofbeldi leysir ekkert. Stríð og ofbeldi því tengt bitnar verst á þeim sem síst skyldi, börnum, fötluðum og veiku fólki, og skilur bara eftir sig eymd og eyðileggingu. En ofbeldi birtist í ýmsum myndum. Afleiðingar þess eru oftast líkamlegt og andlegt tjón þeirra sem síst skyldi. Fjárhagslegt ofbeldi veldur andlegu og líkamlegu tjóni og þeir sem verða fyrir því geta orðið fyrir óbætanlegu tjóni. Hvaða afleiðingar hefur það fyrir fjölskyldu þar sem margir þurfa lífsnauðsynlega á lyfjum að halda ef hún hefur ekki efni á að leysa þau út? Jú, það getur valdið einstaklingum í fjölskyldunni óbætanlegu andlegu og líkamlegu tjóni og þeir eru jafnvel settir í þá aðstöðu að verða að velja á milli sín hver er í forgangi og hver ekki. Hvaða afleiðingar hefur það ofbeldi að fólk eigi ekki fyrir mat dögum saman í hverri viku eða í hverjum mánuði eða svo árum skiptir? Jú, andlegri og líkamlegri heilsu þeirra mun hraka og valda þeim og samfélaginu óbætanlegum skaða. Þetta er svo fámennur hópur sem er í þessari aðstöðu, segja stjórnvöld ítrekað. En hvers vegna gera þau ekkert í þessu máli? Ekki á kostnaðurinn að stöðva stjórnvöld í að koma þessu í lag því að þetta eru svo fáir. Eða er það þess vegna sem þau vilja ekkert gera? Eða er ástæðan einhver önnur? Svari því stjórnarliðar. Verður andlegt og líkamlegt tjón þeirra verst settu í þessari ömurlegu stöðu áfram óbreytt út kjörtímabilið?