152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:46]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vildi koma hingað upp vegna þess að ég held að við sjáum það öll að það getur ekki gengið þannig að þingmenn séu í þeirri stöðu dag eftir dag að koma hingað upp í fundarstjórn og óska eftir því að regluverkið og leikreglur á Alþingi séu virtar, að þingið sé í þeirri stöðu að það getur ekki sinnt sínum störfum, að þingmenn séu hér í þeirri stöðu að óska eftir liðsinni forseta þingsins um það að fá að gera hvað? Vinna vinnuna sína, að fá gögn í hendur til að geta unnið vinnuna sína samkvæmt þeim reglum sem hér gilda.

Ég hefði nú haldið, af því ég veit að málsmeðferðartími er mikið uppáhaldsorð hjá hæstv. dómsmálaráðherra, að næstvinsælasta orðið hjá honum sé skilvirkni. Hvernig getur það verið góð nýting á tíma þingsins, góð nýting á tíma Útlendingastofnunar eða ráðherrans sjálfs að við séum í þessu stappi á hverjum einasta degi?