152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:47]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Herra forseti. Ég verð nú að koma hingað upp og mótmæla þessum málflutningi. Hér koma þingmenn upp og fara með staðlausa stafi og segja það hér blákalt að Útlendingastofnun neiti að afhenda gögn. Við erum búin að fá gögn. Hv. þingmaður veit það. Við vorum að funda hér í morgun, fara yfir umsóknir, fara yfir umsagnir frá Útlendingastofnun. Svo koma hv. þingmenn og segja að stofnunin neiti að afhenda þinginu gögn. Þetta er bara þvæla, þetta er bara algjör þvæla. Ég skil ekkert í hv. þingmönnum að koma hingað upp aftur og endurtaka sömu vitleysuna. Þessi vinna er hafin, henni verður lokið núna í marsmánuði og þá verður þeim sem eru valdir af nefndinni, undirnefndinni, veittur ríkisborgararéttur í frumvarpi hér eftir atkvæðagreiðslu. Þannig að það er ekkert að þessari vinnu núna og ég bið þingmenn bara að halda sig við sannleikann í þessu máli.