152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:49]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Þetta mál snýst um það og hefur snúist um það, eins og ég hef skilið það allan tímann, að það er ráðherra sem ákveður að breyta verklagi Alþingis og það getum við þingmenn ekki sætt okkur við og Alþingi Íslendinga á ekki að sætta sig við slíka framkomu. Ráðherrar í ríkisstjórninni starfa í umboði Alþingis. Það er ekki öfugt. Við megum aldrei sætta okkur við það að ráðherra geti bara tekið sér völd þingsins í eigin hendur. Því hljótum við að mótmæla þangað til hæstv. ráðherrar og hæstv. ríkisstjórn hefur áttað sig á því hver munurinn er á löggjafarvaldi og framkvæmdarvaldinu.