um fundarstjórn.
Herra forseti. Hér kemur hv. þm. Birgir Þórarinsson og talar um að fólk fari með ósannindi. Hann hefði kannski mátt segja söguna alla. Það eru vissulega komin gögn núna en það er búið að þurfa að slíta þetta út úr stofnuninni með töngum (Gripið fram í.) og það er augljóst mál að það er gert að fyrirskipan ráðherra. Síðast þegar við vorum í fundarstjórn um þetta mál þá talaði ég um að þegar eitt mál og annað mál og það þriðja birtist af sama toga sem hefur engan annan tilgang heldur en að ganga gegn réttindum fólk sem hingað kemur, þá eru það ekki þrjú stök tilfelli heldur er farið að teiknast upp munstur. Í nefndinni er algerlega skýrt að Sjálfstæðisflokkurinn er einangraður. Það er meiri hluti þings fyrir því að við höldum þessu verklagi sem við erum núna í og við munum þurfa að hafa hraðar hendur vegna þess að umsóknarfrestur fyrir umsóknir í vor held ég að hafi liðið í gær eða fyrradag.