um fundarstjórn.
Herra forseti. Ríkisborgararéttur er hornsteinn samfélagsins, Án fólksins þá væri ekkert Ísland. Það að veita fólki ríkisborgararétt er eiginlega það fyrsta sem ríkið þarf að gera til að verða til. Nú man ég ekki stjórnarskrána alveg orðrétt, en ef ég man rétt þá stendur eitthvað á þá leið að útlendingi verði aðeins veittur íslenskur ríkisborgararéttur með lögum. Hins vegar var ákveðið á einhverjum tímapunkti í þágu skilvirkni að það fólk sem ætti kannski auðveldast með að fá ríkisborgararétt, vegna þess að það uppfyllti öll lagalegu skilyrðin, væri hægt að afgreiða hjá stofnun. Það er stjórnsýsluafgreiðslan sem mallar hjá Útlendingastofnun allt árið. En eftir standa einstaklingarnir sem eiga kannski ekki skilríki af því að þau brunnu í einhverri sprengjuárás í Sýrlandi, sem uppfylla ekki skilyrði um að hafa ekki þegið framfærslu sveitarfélaga (Forseti hringir.) vegna þess að þau komu hingað á flótta frá sama stríði og þess vegna þurfum við þessa leið í gegnum þingið. (Forseti hringir.) Ef trú hv. þm. Birgis Þórarinssonar reynist rétt og þingið nær (Forseti hringir.) að klára þetta í mars þá er það ársfjórðungi seinna en þetta fólk átti heimtingu á, (Forseti hringir.) ársfjórðungs bið eftir grundvallarréttindum er eitthvað sem við myndum ekki bjóða hvaða fólki sem er upp á. (Forseti hringir.) Nei, þetta eru flóttamenn frá Miðausturlöndum …