152. löggjafarþing — 45. fundur, 2. mars 2022.
um fundarstjórn.
Forseti verður að vekja athygli hv. þingmanns á því að ræðutími hans var löngu liðinn og forseti hafði gefið ítrekað til kynna að ræðutíminn væri liðinn. Forseti verður að gefa ræðumönnum þann tíma sem þingsköp kveða á um en þingmenn geta ekki tvöfaldað þann tíma þó að þeir hætti ekki ræðu sinni. (AIJ: … koma og taka við Útlendingastofnun?)
Forseti biður þingmenn að gæta orða sinna bæði úr ræðustól og af göngum þingsins.