um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Birgir Þórarinsson kom hérna upp og talaði um að Útlendingastofnun hefði afhent gögn. Það er ekki rétt nema að hluta til. Útlendingastofnun hefur afhent gögn, um 30 umsóknir af 170. Nú hef ég setið í þessari undirnefnd oftar en einu sinni og oftar en tvisvar sinnum og það hefur alltaf verið verklagið að við fáum allar umsagnir á sama tíma til þess að við getum afgreitt þær á nokkrum vikum. Það hefur síðan borið við að Útlendingastofnun mætir seinna og seinna með þessi gögn, seinna og seinna til þingsins heldur en henni ber að gera, gerir okkur erfiðara og erfiðara um vik að vinna umsóknirnar. Nú er svo komið að þau þykjast ætla að láta okkur fá þær eftir eigin hentisemi. Það er þingið sem ræður þessu verklagi, það er ekki Útlendingastofnun. Alþingi, löggjafarþing, sem leyfir svona ósvinnu að viðgangast missir sjálfsvirðinguna á endanum.