ástandið í Úkraínu og áhrifin hér á landi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda og utanríkisráðherra fyrir nauðsynlega umræðu, sér í lagi í ljósi aðstæðna í öryggismálum í Evrópu. Hér var minnst á stjórnarsáttmálann og með leyfi forseta langar mig að lesa þar að „ríkisstjórnin leggur áherslu á að öryggismál þjóðarinnar séu í traustum skorðum í samræmi við markmið Þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland sem samþykkt er af Alþingi.“
Ef ég man rétt, herra forseti, var hún samþykkt 2016, samhljóða að ég held. Þar kemur fram að stuðlað verði að endurskoðun á þjóðaröryggisstefnunni á fyrri hluta kjörtímabilsins og við hljótum að vera öll sammála um að nauðsynlegt sé að fara í þá vinnu í ljósi aðstæðna.
Grundvallarforsendur í þjóðaröryggisstefnunni byggjast á þeirri staðreynd að Ísland er fámenn eyþjóð sem hvorki hefur burði né vilja til að ráða yfir her en tryggir öryggi sitt og varnir með virkri samvinnu við önnur ríki og alþjóðastofnanir.
Segja má, herra forseti, að að einhverju leyti snúist þessi deila, a.m.k. af hálfu árásarþjóðarinnar, einmitt um aðild að slíkum bandalögum. Það undirstrikar mikilvægi þess að við Íslendingar öxlum ábyrgð okkar í þeirri samvinnu. Að mínu viti, herra forseti, er afstaða stjórnvalda á Íslandi skýr enda nokkuð ljóst að mikilvægi samstöðu er ómetanlegt á tímum sem þessum. Það hef ég heyrt frá ríkisstjórn, þingheimi og íslensku samfélagi. Það er gott fyrir þá sem standa í stafni við slíkar aðstæður að finna fyrir slíkum styrk og slíkum meðbyr. Ég vonast til þess að okkur farnist vel í okkar alþjóðasamstarfi sem tryggt hefur frið og öryggi okkar í áraraðir.