152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

ástandið í Úkraínu og áhrifin hér á landi.

[16:14]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegur forseti. Ef það er eitthvað sem þeir hræðilegu atburðir, sem við höfum öll fylgst með í fjölmiðlum síðustu daga, sýna okkur þá er það hversu gríðarlega verðmætur friður er fyrir allt okkar líf. Friðurinn er grunnforsenda velsældar. Við, hin herlausa, friðsama þjóð, sem getur ekki svo mikið sem hugsað á forsendum herkænsku og vopnaburðar, finnum það enn sterkar hvað friðurinn er dýrmætur til að tryggja daglegt líf.

Sú grimmilega árás sem íbúar Úkraínu upplifa nú byggir á 19. aldar hugmyndafræði, 20. aldar orðræðu, með vopn 21. aldar í höndunum af hálfu rússneskra stjórnvalda. Ég set ekki alla rússnesku þjóðina undir þennan hatt og tel mikilvægt að við vöndum orðfærið. Ákvarðanir rússneskra stjórnvalda eru ekki þjóðarinnar allrar. Við þurfum að tryggja frið í gegnum þau kerfi og það alþjóðasamstarf sem við tökum þátt í. Við viljum og eigum í góðum samskiptum við hinar Norðurlandaþjóðirnar og aðrar þjóðir í Evrópu. Það er mikilvægt að rækta þau tengsl.

Sú stjórnmálahreyfing sem ég tilheyri vill standa utan hernaðarbandalaga og hefur friðarstefnu að leiðarljósi. En það þarf enginn að velkjast í vafa um heilindi okkar í þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin. Ríkisstjórnin starfar samkvæmt þjóðaröryggisstefnu Íslands, líkt og segir skýrt í báðum stjórnarsáttmálum í samstarfi þessara flokka.

Virðulegi forseti. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði á neyðarfundi að stríðinu í Úkraínu þurfi að linna strax og koma þurfi á friði hið snarasta. Það verður að vera hugmyndafræði 21. aldarinnar, ekki gömul karllæg hugmyndafræði stríðsrekstrar.