152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

ástandið í Úkraínu og áhrifin hér á landi.

[16:36]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Við lifum sögulega tíma. Samstaðan á Alþingi, af hálfu ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar er mikil og áberandi með málstað Úkraínu. Þetta stríðsástand leiðir til sterkari samstöðu en nokkru sinni fyrr innan Evrópu, það er að verða til dýpri skilningur á mikilvægi Evrópusamvinnu um öryggismál og ég trúi því að það sé að verða til dýpri skilningur á mikilvægi Evrópusamstarfs í stærra samhengi. Sú hætta er raunveruleg að Úkraína verði þröskuldurinn fyrir Rússa. Vera Úkraínu í NATO myndi hafa mikið að segja, vera þar skiptir máli og hún skiptir okkur Íslendinga máli. Eftir óformlegan fund í gær með Olgu Díbrovu, sendiherra Úkraínu, hefur mér liðið þannig að ég vil geta sagt það sem ég get héðan úr þessum þingsal og horft á það og rætt hvaða skref við getum tekið sem þjóð. Það hafði mikla þýðingu að Rússum var vikið úr ráðherranefnd Evrópuráðsins meðan á stríðsrekstrinum stendur en við höfum líka diplómatískt vægi í því að geta sent sendiherra Rússlands heim. Ísland er fámenn og herlaus þjóð og á allt sitt undir því að önnur ríki virði landamæri og virði alþjóðalög. Af því hafa auðvitað öll ríki hagsmuni, en fámenn ríki eins og við eigum allt undir að þetta alþjóðlega regluverk sé virt. Ég er stolt af ummælum hæstv. utanríkisráðherra okkar fyrstu daga, stolt af samstöðunni hér á Alþingi, stolt af samstöðu Evrópuríkja. Við vitum að við þurfum harðar og miklar viðskiptahindranir. Við þurfum aðgerðir úr öllum áttum, íþróttasambandanna, menningar og lista og aukið fjármagn Íslands í mannúðaraðstoð og móttöku fólks á flótta. (Forseti hringir.) Forseti. Við eigum ekki að útiloka það að senda rússneska sendiherrann úr landi. Það er skref og aðgerð (Forseti hringir.) sem þarf að skoða í nafni þessarar samstöðu sem ég nefni og hagsmunanna að baki.