152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

greiðsla ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota.

54. mál
[16:43]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Virðulegi forseti. Hér mæli ég fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota, nr. 69/1995 (leiðrétting viðmiða vegna greiðslna ríkissjóðs). Með mér á frumvarpinu eru hv. þingmenn Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson. Með leyfi forseta ætla ég að vísa beint í lagagreinarnar með frumvarpinu.

„1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:

a. Í stað „250.000“ í a-lið 2. mgr. kemur: 455.000.

b. Í stað „5.000.000“ í b-lið 2. mgr. kemur: 9.140.000.

c. Í stað „3.000.000“ í c-lið 2. mgr. kemur: 6.600.000.

d. Í stað „2.500.000“ í d-lið 2. mgr. kemur: 4.570.000.

e. Í stað „1.500.000“ í e-lið 2. mgr. kemur: 2.740.000.

f. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Fjárhæðarmörk skv. 1. og 2. mgr. skulu taka breytingum í upphafi hvers árs í samræmi við þróun launavísitölu frá upphafi til loka næstliðins tólf mánaða tímabils, þó þannig að þær hækki aldrei minna eða lækki meira en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.“

Virðulegi forseti. Þetta er sambærilegt og það sem við sjáum í 69. gr. almannatryggingalaga, sem er þverbrotin daginn út og inn á almannatryggingaþegum þar sem þeir fá ekki að njóta almennrar launaþróunar í landinu heldur er sveiflað á milli þess sem er hagstæðara fyrir ríkissjóð á hverju sinni, en almannatryggingaþeginn færi ekki að njóta vafans.

Í 2. gr. frumvarpsins segir að lög þessi öðlist gildi 1. janúar 2022, þannig að ef lögin verða samþykkt þá munu þau gilda frá 1. janúar síðastliðnum.

Takið eftir því að ég var með ansi mörg þingmannamál í gær, mál sem öll voru réttlætis- og sanngirnismál til bóta fyrir þá sem á þurfa að halda og nýta og nota, og takið þið nú eftir að hér er ég að mæla fyrir þessu sanngirnismáli fjórða árið í röð eins og kemur fram í greinargerð. Það er hér endurflutt óbreytt að því undanskildu að fjárreiðunum hefur verið breytt til samræmis við þróun launavísitölu frá því að frumvarpið var síðast lagt fram, ásamt því að gildistökunni hefur verið breytt.

Bótagreiðslur sem ríkissjóður ábyrgist á grundvelli laga um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota takmarkast við fjárhæðir samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laganna. Þær fjárhæðir sem þar er kveðið á um hafa verið óbreyttar, hugsið ykkur, frá árinu 2012, sem sagt í tíu ár hafa þær verið óbreyttar og í engu hreyfst frá árinu 2012. Hvernig í ósköpunum er hægt að réttlæta það að tekin sé ein tala frá því fyrir tíu árum síðan? Og það skiptir engu máli hvernig þróunin hefur verið í samfélaginu, hvernig kjarabætur hafa orðið í samfélaginu, hvernig launahækkanir hafa verið í samfélaginu, verðbólguþróun og allt heila klabbið í samfélaginu. Nei, löggjafinn ætlar ekki, ríkisstjórnin og ráðamenn ætla sannarlega ekkert að gera í því. En síðan 2012 hafa orðið breytingar á verðlagi og, eins og ég segi, alls konar, alls konar, alls konar. Þess vegna er það svo mikilvægt að við leiðréttum allar þessar fjárhæðir í rauninni frá árinu 2012. Þess vegna kemur það til að í þessum stafliðum sem ég taldi hér upp á undan er bersýnilega verið að sýna hvernig upphæðin liti út í dag ef hún hefði fylgt vísitöluþróun. Síðan er fest inn í þetta frumvarp að þegar þessar breytingar hafa tekið gildi þá munu þessar tölur framvegis fylgja almennri launaþróun og aldrei minna en sem nemur við vísitölu neysluverðs.

Við skulum t.d. athuga að þegar fjárhæðum var breytt síðast í júní 2012 þá stóð launavísitalan, miðað við grunn frá 1989, samkvæmt vefsíðu Hagstofu Íslands, í 433,1 stigi. En nú, virðulegi forseti, þá stendur hún í 791,6 stigum og þá er ekki ósennilegt að hún kunni að hækka verulega í framtíðinni. Þannig að það er augljóst að alls staðar þar sem það á að bæta fólki miska, skaða eða hvaðeina annað sem er, eða bara í rauninni nauðsynlega framfærslu, þá draga ríkissjóður og ríkiskerfið lappirnar eins og þau mögulega geta. Ég hélt í rauninni og stóð alltaf í þeirri trú að ríkisstjórn og stjórnvöld hvers ríkis og lands væru til að vinna samfélagi sínu gagn, ekki mismuna þegnum sínum og ekki sýna bersýnilega óvild í þeirra garð, eins og þetta ber með sér, hvernig fólk sem hefur beðið miska, skaða og gengið í gegnum alls konar þjáningar hefur einfaldlega verið skilið eftir í tíu heil ár.

Af framangreindum ástæðum er lagt til að fjárhæðir samkvæmt 2. mgr. 7. gr. hækki, eðli málsins samkvæmt.

Ástæða þykir til að ábyrgð á greiðslum ríkissjóðs á bótum fyrir miska samkvæmt c-lið 1. gr. frumvarpsins verði hækkuð umfram hlutfallslega hækkun annarra liða. Sífellt kemur betur í ljós hve mikil áhrif afbrot hafa á líf og líðan brotaþola. Erfitt er að meta slík áhrif út frá læknisfræðilegum viðmiðum. Þótt líkamleg áhrif brots séu metin er erfiðara að meta andleg áhrif og þau geta oft komið fram eða aukist löngu, löngu, löngu eftir að brot er framið og þar til bætur eru dæmdar eða ákvarðaðar. Þá er óskandi að slík hækkun á ábyrgð greiðslu ríkissjóðs veiti dómstólum hvatningu til að ákvarða hærri bætur fyrir miska í alvarlegri málum en tíðkast hefur.

Einnig er lagt til að til frambúðar hækki fjárhæðir bóta samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laganna árlega í samræmi við breytingar á launavísitölu, og er það einstaklega mikilvægt fyrir þolendur sem hér um ræðir.

Ég hef í rauninni ekkert meira við það að bæta, virðulegi forseti. Ég segi bara: Þetta er eitt af þessum málum sem ég myndi segja að væri svona til þess að taka til í ranni lagabálksins. Skaðabótalögin eru einn af þeim lagabálkum sem vöktu mikla gleði þegar þeir voru settir á laggirnar og voru samþykktir á sínum tíma. En betur má ef duga skal. Það er alveg með hreinum ólíkindum að þeir sem virkilega þurfa á að halda, verða fyrir gríðarlegu tjóni, andlegu, líkamlegu, slysum eða jafnvel afbrotum, skuli hafa verið látnir sitja eftir í heil tíu ár án þess að hróflað hafi verið við þeim upphæðum sem þá voru lagðar til grundvallar þeim skaða sem einstaklingarnir höfðu svo sannarlega orðið fyrir.

Ég vona, virðulegi forseti, að ég eigi ekki eftir að þurfa að mæla fyrir þessu máli í fimmta sinn í röð og það verði tekið utan um það núna, enda er búið að vinna vinnu sem er hægt að taka í fangið og fylgja einfaldlega eftir. Það á ekki eftir að gera neitt annað en að samþykkja þetta frumvarp. Við höfum ítrekað sagt að okkur er alveg sama hvaðan gott kemur. Ef ríkisstjórnin vildi bara taka málið og fylgja því eftir þá má hún alveg eiga það. Flokkur fólksins er stoltur í allar áttir þegar kemur að því að leggja fram góð mál og vonast svo sannarlega til að utan um þau verði tekið og þau verði samþykkt.

Að lokum vil ég, virðulegi forseti, vísa þessu máli til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.