152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

greiðsla ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota.

54. mál
[16:59]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir að leggja fram þetta frumvarp. En mig langar að gera tillögu að því að gera þetta frumvarp almennilegt. Það á nefnilega ekki að vera þannig að það séu takmörk á því hvað ríkið borgar. Það er vel þekkt að þolendur fá aldrei hærri fjárhæð heldur en þá sem ríkið tryggir. Hugmyndafræðin á bak við upprunalegu lögin var sú að þolandi þyrfti ekki að fara og sækja þessar greiðslur persónulega til þess sem olli tjóninu. Það á ekki að vera þannig að t.d. þolendur kynferðisbrots þurfi að fara og sækja peninga til þess sem nauðgaði þeim. Það á alls ekki að vera þannig. Það er ekki eins og að ríkið sé að gefa þolendum þennan pening því ríkið hefur endurkröfurétt á þessa peninga til þess sem olli tjóninu. Þá eiga ekki að þurfa að vera nein einustu takmörk og við þurfum ekkert að spá í hvað vísitalan er og allt þetta. Ríkið á einfaldlega, ef dómari dæmir upphæð, að greiða þá upphæð og ríkið, rétt eins og ríkið nær í hluti eins og meðlög, á að ná í þessa peninga til þeirra sem tjóninu ollu. Annars getur dómari dæmt 100 milljarða í bætur vitandi það að viðkomandi muni aldrei fá að sjá það heldur bara þá upphæð sem hér stendur, sem er náttúrlega hlægilega lág. Ég veit það að t.d. þolendum kynferðisbrota sem ég þekki sem hafa verið dæmdar bætur er hreinlega sagt af sínum réttargæslumönnum: Gleymdu því hvaða upphæð dómarinn nefnir. Þú munt aldrei sjá hana, þú munt einungis sjá það sem ríkið borgar í gegnum lögin. Þannig á það ekki að vera. Ef dómari segir að brot hafi verið það alvarlegt að bætur fyrir það skuli hljóða upp á einhverja tölu þá skal þolandi fá þær bætur án þess að þurfa að fara og sækja þær sjálf eða sjálfur. Þar að auki eru fleiri gallar í þessum lögum sem þarf að laga, t.d. er hægt að draga frá ef maður fær eitthvað út úr almannatryggingum eða fær eitthvað út úr veikindalaunum á því tímabili. Hvers konar rugl er þetta? Það er verið að dæma þér bætur fyrir brot gegn þér og fyrst að þér tókst að fá veikindadaga þá á að draga þá frá. Ég veit ekki hvað hv. þingmenn sem skrifuðu það voru að hugsa, virðulegur forseti, maður á víst ekki að ávarpa hv. þingmenn of mikið beint.

Það er von mín að allir hv. þingmenn ríkisstjórnarinnar sem hér sitja horfi á þessi lög, horfi á þetta frumvarp. Það þarf ekki, virðulegi forseti, að ákveða einhverjar upphæðir. Það þarf einfaldlega að taka út 7. gr. þessara laga og það þarf að stytta ansi mikið 10. gr. þessara laga. Þá erum við komin með ansi góð lög þar sem þolendur eru settir framar gerendum.