greiðsla ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni hjartanlega fyrir sína frábæra ræðu. Ég get einfaldlega tekið undir hvert einasta orð sem hv. þingmaður sagði. Hins vegar hefur það verið svona lærdómur sem maður hefur dregið við það að vinna hér á þingi að einhvers staðar verður maður að byrja og einhvern veginn fannst okkur betra að fá tæpar 10 millj. kr. en 5 milljónir af því að við vitum að við getum ekkert af þessu sótt hvort heldur sem er. Við höfum alltaf verið að reyna að taka þessi litlu skref í réttu áttina. En ég segi ekkert annað en það að okkur væri sannur sómi að því að bylta þessari löggjöf þannig að hún skili þeim árangri sem við viljum öll sjá, ég tek hjartanlega undir með hv. þingmanni. Ég get alveg sagt það að það væri afskaplega flott að klippa út 7. gr. og laga frumvarpið í allar þær áttir sem hv. þingmaður talar um. En ég er þá alveg 100% viss um að við myndum mæla fyrir því í fimmta sinn og sjötta sinn og endalaust sinn. Það er ekki bara skaðabótalöggjöfin sem við þurfum að hjálpast að við að taka í gegn, við þurfum að gera það víðara. Ég spyr hv. þingmann hvort hann vilji ekki bara aðstoða okkur hreinlega við að gera enn þá öflugra frumvarp sem við leggjum fram. Við gætum verið búin að leggja það fram fyrir 1. apríl. Við höfum tíma og tækifæri til þess. Þetta frumvarp hins vegar er gert af góðum vilja og til þess að láta það sem var ákveðið fyrir tíu árum síðan fylgja a.m.k. launaþróun í landinu og vísitölu. Að öðru leyti vorum við ekki að stokka upp skaðabótalöggjöfina að þessu sinni.