152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

greiðsla ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota.

54. mál
[17:06]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvar og hvet hv. þingmann til þess að hugsa stærra því að þegar kemur að því að laga óréttlætið þá þurfum við stundum einfaldlega að hugsa stærra. Og ég trúi því ekki, virðulegi forseti, að nokkur hv. þingmaður hér inni muni standa með hlið geranda í þessu máli heldur hlið þolenda.