greiðsla ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. En því miður er það svo við erum að horfa á það hvern einasta dag hvernig staða og umgjörð utan um þolendur hvers konar hefur svo sannarlega verið broguð alla tíð og ævinlega. Við höfum verið að kalla eftir því að það verði reynt að bæta stöðu brotaþola en því miður er ekki svo. En, já, við getum hugsað stærra og oft og tíðum hef ég nú verið bendluð við það að vera í hálfgerðum skýjaborgum og draumheimi með allar mínar stóru hugsanir og markmið til betri vegar fyrir allt og alla í þessu fallega samfélag okkar þannig að ég hef þó lært það að það er betra að fá því framgengt og geta náð árangri jöfnum skrefum en að koma með það allt saman inn á borð og fá bara einn beint á kjaftinn, eins og þar stendur. Ég er mjög stórhuga í öllu sem ég tek mér fyrir hendur en ég reyni, virðulegi forseti og hv. þingmaður, að vera raunsæ. Ef við næðum þessu fram þá fyndist mér það sannarlega fyrirhafnarinnar virði og væri þakklát fyrir það til að byrja með.