152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

greiðsla ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota.

54. mál
[17:08]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, fá skref eða stór. Ég er til í að fá á mig kjaftshöggin fyrir brotaþola. Ég býð þá bara fram hina kinnina. En ég mun berjast við hlið hv. þm. Ingu Sæland og annarra þegar kemur að því að bæta stöðu brotaþola. Þar mun ég berjast og berjast.