152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

greiðsla ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota.

54. mál
[17:09]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég er stoltur meðflutningsmaður þessa lagafrumvarps um breytingu á lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota, sem eru lög frá 1995. Það er vert að athuga varðandi 1. gr. frumvarpsins, þær tölur sem hér er verið að breyta, að í a-liðnum er tala sem er frá 1995, í b-liðnum er verið að breyta fjárhæð sem kom í lög 2012, í c-lið 2012, d-lið 1995 og e-lið 2012. A-liðurinn lýtur að tjóni á munum og b-liðurinn er fyrir líkamstjón, þar með talið varanlegan miska og varanlega örorku, c-liðurinn er fyrir miska, d-liðurinn fyrir missi framfæranda og e-liðurinn er vegna útfararkostnaðar. Ég tel að hér sé löngu tímabær lagabreyting á ferðinni. Eins og fyrsti flutningsmaður sagði hér áðan: Þetta er eitt af þessum málum þar sem þarf að taka til í íslenskri löggjöf. Þetta er líka eitt af þessum málum sem nauðsynlegt er að gera sem allra fyrst og þetta hefur dagað uppi í löggjöfinni, hreint og beint. Fjárhæðirnar sem eru frá þeim árum sem ég taldi upp áðan, frá 1995 tvær fjárhæðir, og þrjár frá 2012, eru einfaldlega allt of lágar fjárhæðir. Ég tel það líka mjög mikilvægt sem segir í 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins, með leyfi forseta:

„Fjárhæðarmörk skv. 1. og 2. mgr. skulu taka breytingum í upphafi hvers árs í samræmi við þróun launavísitölu frá upphafi til loka næstliðins tólf mánaða tímabils, þó þannig að þær hækki aldrei minna eða lækki meira en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.“

Verið er að miða við launavísitölu en að fjárhæðirnar megi aldrei lækka meira eða hækka minna en vísitala neysluverðs. Hér er verið að laga ágalla á gildandi löggjöf, að þessar fjárhæðir hafi ekki þróast í samræmi við verðlag. Það er stórkostlegur ágalli. Þegar fjárhæðinni var síðast breytt í júní 2012 stóð launavísitalan í 433 stigum. Nú stendur launavísitala í 791,6 stigum, það er nánast tvöföldun, og samt erum við enn þá með sömu fjárhæðir. Það er alger nauðsyn að breyta þessu, alveg grundvallaratriði, og Alþingi Íslendinga væri svo sannarlega að standa með þolendum ef þetta frumvarp yrði að lögum. Hér er bara um sjálfsagðan hlut að ræða og mjög mikilvægt frumvarp fyrir þolendur afbrota. Og það er rétt sem kemur fram í frumvarpinu að það er óskandi að þessi hækkun á greiðslu ríkissjóðs veiti dómstólum hvatningu til að ákvarða hærri bætur fyrir miska í alvarlegum málum en hefur tíðkast hingað til.

Það er grundvallaratriði að þetta sé bundið vísitölu neysluverðs vegna þess að launavísitalan, eins og kemur fram í frumvarpinu, getur lækkað ef efnahagur versnar skyndilega. Þess vegna er mjög mikilvægt að tekið verði mið af vísitölu neysluverðs ef hún hækkar meira eða lækkar ekki minna á gefnu ári en launavísitalan Þannig að þetta er bara sjálfsagður hlutur og ætti raunverulega ekki að vera neitt deiluefni. Ég get ekki séð hvað ætti að geta stoppað þetta mál í nefnd á nokkurn einasta hátt.

Þetta er lítið frumvarp en gríðarlega mikilvægt fyrir þolendur afbrota og á tímum þar sem mikið er talað um gerendameðvirkni og að ekki sé tekið tillit til þolenda þá væru þetta rétt skilaboð frá Alþingi Íslendinga um hvernig það lítur á bætur til þolenda.