almannatryggingar.
Forseti. Ég myndi ætla að lífeyrisþegi tilgreini bara hvaða bankareikning eigi að millifæra á. Slíkri millifærslu fylgir oft mismunandi mikill kostnaður og að einhverju leyti er það kannski val um að velja bankareikning þar sem er mikill kostnaður við millifærslur eða eitthvað því um líkt, sem væri ekki sniðugt að gera. Það sem ég er að reyna að benda á er að í nútímaheimi ætti varla að vera til slíkur kostnaður á millifærslum og í þannig heimi skiptir ekki máli hvaða reikning lífeyrisþegi velur til að láta millifæra á, af því að kostnaðurinn er hvort eð er sama og enginn. En við búum ekki við það akkúrat eins og er, því miður. Ég sé ekkert að því að þetta sé upphæðin sem lífeyrisþegi fær skilgreinda inn á bankareikning sinn óháð öðrum kostnaði. En ég sé líka ákveðin sanngirnisrök á bak við það að fólk sé alla vega að velja þannig reikning sem er ekki vesen að millifæra á. Ég veit ekki. En ég er bara að benda á að við ættum að gera betur í þessum millifærsluatriðum og nýta það aðgengi sem er til í heiminum í dag til að lágmarka allan svona kostnað fyrir alla borgara, ekki bara lífeyrisþega heldur alla. Þá er þetta ekki vandamál þegar allt kemur til alls, þá getur fólk flutt peninga á milli fram og til baka og borið þessa aura sem myndu kannski teljast af hverri færslu fyrir sig.