almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Málið er bara þetta. Það á ekki að vera nokkur einasti munur á því hvort lífeyrisþegi sé með erlendan bankareikning eða íslenska bankareikning, séð frá Tryggingastofnun á ekki að vera nokkur munur á því. Hv. þingmaður minntist á peningaþvætti og annað slíkt. Ég held að ef eitthvað er þá séu bara betri peningavarnir erlendis en hér á landi. Við vorum á lista yfir ósamvinnuþýð ríki um tíma sem er svartur listi í heiminum hvað það varðar. Það er líka annað sem skiptir máli fyrir lífeyrisþegana. Þeir geta notað íslenskt kort, þeir geta notað íslensk bankakort, en þá eru alltaf gjaldeyrisviðskipti í hvert einasta skipti þegar þeir greiða og það er miklu betra ef þú býrð erlendis að vera í viðskiptum við þarlendan banka og nota kort þess lands og nota gjaldmiðil þess lands. Það er mikið hagræði fyrir lífeyrisþega að nota erlenda bankareikninga. Að það sé verið að rukka þá um þessa fjárhæð í hvert einasta skipti sem verið er að færa pening frá Íslandi yfir á erlendan bankareikning og hún dregin af lífeyrisgreiðslunum tel ég ekki standast jafnræði miðað við búsetu. Við eigum að hafa jafnræði á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins og ef einhver ætti að njóta góðs af frjálsum fjármagnsflutningum eru það lífeyrisþegar. Þetta er alveg klárt mál. Og þetta er svo mikið smámál að mér finnst það algjört hneyksli að vera að standa í þessu, Tryggingastofnun á bara að taka það upp hjá sjálfri sér að hætta því. Ég vona að Alþingi samþykki þetta frumvarp og gefið skilaboð til Tryggingastofnunar um hvernig eigi að gera þetta í raun svo að fólk geti þá stofnað erlenda bankareikninga. Það er smámál, það er reyndar ekki kennitöluæði erlendis eins og hér en menn þurfa að sanna deili á sér og annað slíkt. Það er bara sjálfsagt mál, fólk sem vill búa erlendis á að fá að gera það og njóta íslenskra lífeyrisréttinda erlendis án þess að það sé tekið af þeim. Mér þætti gott að heyra álit hv. þingmanns á því hvort þessi munur sé ekki einfaldlega algjört hneyksli.