152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

almannatryggingar.

55. mál
[17:44]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég velti því fyrir mér af hverju Tryggingastofnun á að standa í því að kaupa gjaldeyri. Er ekki í rauninni bara verið að millifæra íslenskar krónur til fólks sem er með íslensk lífeyrisréttindi? (Gripið fram í.) Já. Hv. þingmaður bendir á að stundum gerist það sjálfkrafa en kostnaðurinn við það, hvar lendir hann? Það er lykilatriðið hérna. Ég myndi halda að af hálfu Tryggingastofnunar sem er að greiða í íslenskum krónum, af því að það er það sem við samþykkjum hér á þingi, fjárheimildir í íslenskum krónum, sé það sem Tryggingastofnun skilar frá sér og þarf ekki að bera annan kostnað umfram það. Það hlýtur að vera sá sem tekur við íslensku krónunum sem ákveður síðan hvað hann vill gera við þær krónur. Það finnst mér alla vega vera jafnræðið gagnvart öllum sem eru með íslensk lífeyrisréttindi, að fá þær íslensku krónur sem þeir eiga rétt á, ekki dollarana eða evrurnar eða hvað þá annað sem það er, þ.e. á kostnað ríkisins og kostnað allra annarra. Þannig að ég sé ekki að við séum að samþykkja í fjárlögum eða í lögum þann kostnað sem slíkan, gjaldeyriskostnaðinn á þeirri færslu. En millifærslukostnaðurinn er hins vegar allt annað.