sértækar aðgerðir vegna stöðu heimilanna.
Herra forseti. Undir lok febrúarmánaðar var hæstv. viðkskiptaráðherra býsna yfirlýsingaglöð í fjölmiðlum varðandi hugsanlegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að mæta stöðu fólks sem á í erfiðleikum vegna erfiðra efnahagsaðstæðna. Ráðherra sagði að ríkisstjórnin hefði greint stöðuna mjög vel og verið meðvituð um að ákveðnir hópar myndu lenda í vandræðum vegna hækkandi vaxta og verðbólgu og fullyrti að ráðist yrði í efnahagsaðgerðir. Hún lagði m.a. til að ofurhagnaður einstakra greina, t.d. í sjávarútvegi, yrði skattlagður, að bankar myndu nýta hagnað sinn til að niðurgreiða vexti á íbúðalánum ellegar yrði lagður á hærri bankaskattur og að beita ætti vaxtabótakerfinu af meiri þunga. Þetta var nýr og hressandi tónn sem við í Samfylkingunni vorum nokkuð ánægð með enda teljum við nauðsynlegt að ráðast í sértækar aðgerðir til að mæta þeim heimilum sem fá núna skell með hækkun vaxta og verðbólgu. Það er ekki ólíklegt að þetta muni ýkjast núna með ófriðartímum í Úkraínu. Við höfum raunar lagt fram þingsályktunartillögu ásamt öðrum flokkum stjórnarandstöðunnar um þetta.
Viðskiptaráðherra fullyrti líka á Sprengisandi að þessar hugmyndir nytu stuðnings formanns hennar og þingflokks og að Framsóknarflokkurinn myndi ráðast í að afla þessum tillögum stuðnings innan hinna ríkisstjórnarflokkanna. En eftir smáeftirgrennslan kom í ljós að þessar tillögur varaformanns Framsóknarflokksins virtust engan hljómgrunn hafa hjá samstarfsflokkunum, hvorki Sjálfstæðisflokknum né Vinstri grænum. Þess vegna spyr ég hæstv. innviðaráðherra: Voru þetta innstæðulausar yfirlýsingar hjá varaformanni og ráðherra Framsóknarflokksins eða styður hann og þingflokkurinn þær eins og hún fullyrti? Hefur Framsóknarflokkurinn lagt þessar hugmyndir fram við ríkisstjórnarborðið eða hefur þeim þegar verið hafnað þar?