sértækar aðgerðir vegna stöðu heimilanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni að taka upp stefnu og sjónarmið okkar Framsóknarmanna. Við sem erum í stjórnmálum, hvort sem við erum þingmenn eða ráðherrar, eigum að sjálfsögðu að tjá okkur um það hvað okkur finnst og hvert við eigum að stefna. Það sem hæstv. ráðherra sagði var að á þeim tímum þar sem bankarnir högnuðust verulega — ég held að hún hafi talað um að það væri mikill gróði, sem menn geta auðvitað bara velt fyrir sér í stóra samhengi hlutanna. En það er engin spurning að það voru miklir fjármunir. Þá hvatti hún bankana. Hún hvatti bankana til að skila hluta af þessum fjármunum til viðskiptavinanna. Og hvað gerðist? Hvað gerðist, hv. þingmaður? (Gripið fram í.) (Gripið fram í: Þeir hækkuðu vexti.) Og ef þeir myndu ekki gera það væri þingið með tæki. Það væri hægt að leggja á bankaskatt að nýju og hækka skatta, arðgreiðslur eða eitthvað slíkt. En bankarnir hækkuðu ekki. Þeir hækkuðu ekki vextina í samræmi við stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Þeir tóku með öðrum orðum tillit til þess sem viðskiptaráðherra sagði og fóru algjörlega eftir því sem viðskiptaráðherra sagði. Þannig að það hefur ekki komið til þess að við höfum farið að beita þeim aðgerðum að refsa bönkunum. Við þurfum hins vegar að halda áfram að fylgjast með, hv. þingmaður, og ég veit að við deilum þeirri skoðun. Við þurfum að fylgjast með þeim hópum sem verða augljóslega fyrir meiri áhrifum af verðbólgunni, af stighækkandi verðlagi og þeim aðstæðum sem geta komið upp, hvort sem það er á húsnæðismarkaði eða annars staðar. Ég er sammála hv. þingmanni um það.