sértækar aðgerðir vegna stöðu heimilanna.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra fer í kringum þetta eins og köttur í kringum heitan graut. Auðvitað hækkuðu bankarnir vexti, Landsbankinn um 0,5% (Gripið fram í.)af þessum 0,75 prósentustigum sem hækkað var um. En það sem var áhugavert hjá ráðherranum var að hann talaði um að þingið hefði tæki. Hann talaði ekki um að ríkisstjórnin hefði tæki, vegna þess að vissulega kann að vera meiri hluti hér á þingi þó að það sé ekki meiri hluti í ríkisstjórninni fyrir þessum tillögum. Þá er fyrsta spurningin: Njóta þau sjónarmið hans stuðnings um að beita ýtrustu úrræðum til að koma á móts við viðkvæmustu hópana? Nýtur það stuðnings innan hinna ríkisstjórnarflokkanna? Ef ekki, mun hann þá koma með málið sjálfur til þingsins þannig að þingið geti tekið ákvörðun um hvað eigi að gera, og í hvaða aðstæðum er ríkisstjórnin þá? Hæstv. ráðherra verður bara á þessari mínútu sem eftir er að svara spurningunni: Styðja samstarfsflokkarnir tillögu ráðherra og mun hann koma með þetta til þingsins ef hún nýtur ekki stuðnings innan ríkisstjórnarinnar? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)