sértækar aðgerðir vegna stöðu heimilanna.
Virðulegi forseti. Það gengur auðvitað ekki upp hjá Samfylkingunni og hv. þingmönnum að koma hér æpandi út alla daga (Gripið fram í.)og tala um að vaxtastigið sé eitthvað (Gripið fram í.) óvenjuhátt í þessu landi þegar staðreyndin er sú … [Háreysti í þingsal.] Þegar staðreyndin er sú … (ÞKG: Svaraðu spurningunni. ) — Hæstv. forseti. Hef ég ekki mínútu til að svara? (Forseti hringir.)
(Forseti (BÁ): Forseti biður þingmenn að gefa hæstv. ráðherra hljóð til að svara.)
(LE: Á að …)(ÞKG: Er þetta eitthvað viðkvæmt?)
Þetta er þannig að vextir eru ekki mjög háir á Íslandi þó að þeir hafi hækkað. Og það sem hv. þingmaður sagði hérna — já, Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,75 en bankarnir hækkuðu bara um 0,4 eða 0,5. (Gripið fram í.) Með öðrum orðum: Vaxtamunurinn er minni en hann var áður. (ÞKG: Er ekkert að marka Framsóknarflokkinn?) Þar af leiðandi er það staðreynd (ÞKG: … ekkert að marka …) að bankarnir hlustuðu eftir því (Gripið fram í.) sem viðskiptaráðherra sagði (Gripið fram í.) og fór …
(Forseti (BÁ): Forseti verður að biðja þingmenn að gefa ræðumanni hljóð til að ljúka máli sínu.)
(ÞKG: Hann á að svara …)(Gripið fram í.) (Forseti hringir.)
(Forseti (BÁ): Það gengur ekki að það séu fimm þingmenn …)
(ÞKG: Ráðherra ber að svara.) (Forseti hringir.)
(Forseti (BÁ): Forseti verður að biðja þingmenn að sýna ræðumönnum og þingsköpunum þá virðingu að hafa hljóð meðan ræðumaður lýkur máli sínu, en ekki fjórir, fimm að tala úr sæti sínu í einu.)
(LE: Gefðu honum aukamínútu.)
Mig langar að segja við hv. þingmann og þá sem hér hafa galað hvað hæst, að það er auðvitað þannig að þegar menn heyra sannleikann þá verða þeir sárir. [Hlátur í þingsal.] Staðreyndin er þessi: Bankarnir hlustuðu. Staðreyndin er þessi: Vaxtastigið í landinu er lægra en oft áður. Staðreyndin er líka þessi að verðbólgan vex og við þurfum að vera á vaktinni. Við verðum tilbúin til þess í ríkisstjórninni og ég veit að margir hér í þinginu verða tilbúnir til að vera með okkur í því.