152. löggjafarþing — 46. fundur,  3. mars 2022.

vegurinn yfir Hellisheiði.

[10:40]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað freistandi að halda áfram þessari fyrirspurn sem sett var fram áðan. Það er greinilegt að það kemur hæstv. innviðaráðherra eitthvað úr jafnvægi. En gott og vel. Ég ætla að tala um mál sem er í nærsveitarfélaginu hér við höfuðborgarsvæðið, svæði sem hæstv. ráðherra ætti að þekkja. Ég vona að það komi honum ekki úr jafnvægi þó að ég spyrji um Hellisheiðina en ég er ein af þeim sem furða mig mjög á langri og ítrekaðri lokun Hellisheiðar núna yfir veturinn. Ég vil bara vitna í orð bæjarstjóra Hveragerðis þar sem hún segir, eins og við öll: Við sýnum því allan skilning að vegir geta lokast, en tilfinningin er hins vegar sú að Hellisheiðin hafi lokast oftar og lengur þennan vetur en áður og ekki síst er tilfinningin sú að það sé opnað seinna og lokanir séu lengri. Ég segi þetta líka. Síðan 1966 er ég búin að fara oft í viku, mörgum sinnum í viku í Ölfusið, mitt annað heimasveitarfélag, og ég veit alveg hvað ég er að tala um hér. Þannig að ég vil gera orð bæjarstjórans Hveragerðis að mínum þegar hún segir: Það er þessi tilfinning að það sé ekki verið að gera nóg.

Mig langar til að benda á að á síðustu tíu árum hafa orðið miklir fólksflutningar austur fyrir fjall, til Hveragerðis en líka Árborgar. Við sjáum blessunarlega að stór fyrirtæki hasla sér völl þar, en þetta þýðir meiri umferð til og frá höfuðborgarsvæðinu, á milli þessara svæða, fyrir utan að ferðaþjónustan hefur bætt verulega í og fer vonandi að gera það aftur.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Eru einhver plön um að taka tillit til þess sem veðurfræðingar hafa sagt, að við vanmetum vaxandi veðuröfgar, m.a. á þessu svæði? Hefur ráðherra fundað með Vegagerðinni og innt hana eftir því hvort verið sé að moka með öðrum hætti og hvort tekið sé undir þessi orð af hálfu heimafólks? Síðast en ekki síst langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi eitthvað hugsað um að endurmeta áætlanir varðandi göng undir Hellisheiðina, hvort það sé eitthvað í pípunum um að skoða það mál að nýju.