152. löggjafarþing — 46. fundur,  3. mars 2022.

vegurinn yfir Hellisheiði.

[10:42]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Það er gott að fá tækifæri til að ræða þessi mál sem eðlilega hafa verið talsvert til umfjöllunar. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, að á liðnum árum eru sífellt fleiri sem treysta því að komast á milli landshluta og kannski hefur samfélagið líka bara breyst, það eru meiri væntingar til þess. Við gleymum því oft að við búum á Íslandi og okkur finnst að við eigum að fá þessa vetrarþjónustu og væntingarnar vaxa. Ég hef fullan skilning á því. Ég held að það sé ekki tilfinning, ég held að það sé raunveruleiki að Hellisheiðin hefur bæði verið lokuð oftar og lengur núna í hvert sinn en um langt skeið. Sjálfur hef ég á síðustu 12 árum verið að keyra talsvert til Reykjavíkur og ég held að ég hafi verið veðurtepptur oftar núna í febrúar síðastliðnum en fyrri ár, svo það sé nú sagt.

Við höfum eðlilega, vegna þess að menn hafa verið að kvarta hingað og þangað vegna þessarar staðreyndar, leitað eftir upplýsingum hjá Vegagerðinni. Staðreyndin er þessi: Það var boðið út að nýju. Nýr verktaki tók við. Það var í engu breytt uppskrift að þjónustukaupum eða útboðsskilmálum eða verklagsreglum, það eina sem hefur raunverulega breyst frá því sem var í fyrra er að það er allt annað veður. Það sem ég held að við getum sagt núna í febrúar, og það kemur nú bara til af því að maður hefur áhuga á veðri, að í staðinn fyrir að lægðin komi og gangi yfir á fjórum, fimm klukkutímum og síðan kemur logn og þá er möguleiki að moka, þá hefur veðrið staðið yfir í allt að tvo sólarhringa og jafnvel verið ofsaveður, 25 metrar á sekúndu. Annað sem er, og það er líka óvanalegt og gerist með löngu millibili, að það er kaldara, enda hefur snjór verið yfir á suðvesturhorninu allan tímann, hann kemur ekki og fer eins og hefur verið. Þannig að það er búið að vera látlaus skafrenningur og snjórinn hefur vaxið. Svarið er því miður það að veðrið er óvenjuslæmt á Íslandi um þessar mundir og ég held að menn séu allir að reyna að gera sitt besta til að halda opnu.