152. löggjafarþing — 46. fundur,  3. mars 2022.

svör við fyrirspurnum.

[11:11]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er uppáhaldsefnið mitt í fundarstjórn forseta. Ég er með forrit sem ég renni alltaf í gang þegar verið er að spyrja um þetta og núna er staðan sú að fjöldi ósvaraðra fyrirspurna er 91. Það er búið að svara 58 fyrirspurnum að meðaltali á 25 virkum dögum sem er rúmlega það sem á að vera. Þar eru ráðherrar eins og innanríkisráðherra með 33 daga svartíma, félags- og vinnumarkaðsráðherra með 31 dags svartíma og orku- og loftslagsmálaráðherra 33 daga, svo skussarnir séu dregnir upp úr þessum tölum. Hinir standa sig aðeins betur en þetta er staðan eins og hún er núna. Eins og venjulega erum við að fá svör seinna en gert er ráð fyrir því að starf okkar hérna er stundum á þann hátt að við þurfum að fá upplýsingar hratt til að geta unnið þingmál, álit í nefndum. Sérstaklega í nefndunum, þar er miðað við sjö daga þannig að enn og aftur: Gera betur hér.