svör við fyrirspurnum.
Virðulegur forseti. Við tölum um að svara fyrirspurnum. Það er auðvitað líka mjög slæmur ósiður hjá ráðherrum þessarar ríkisstjórnar og eflaust margra annarra á undan henni að svara ekki í óundirbúnum fyrirspurnum eins og við urðum vitni að hér fyrr í dag. Einu tækin sem þingmenn í raun hafa til að bregðast við því er að óska eftir því að þeir geri það en þá er á þá sussað. Þá velti ég fyrir mér hvaða tæki við höfum í raun til að fá ráðherra til að svara þeim spurningum sem að þeim er beint, því talandi um virðingu fyrir Alþingi þá hlýtur það nú að vera lágmarksvirðing a.m.k. að reyna að svara þeim spurningum sem að fólki er beint í staðinn fyrir að fara um víðan völl og svara engu. En gott og vel. Nóg um það.
Ég vildi líka koma hérna upp og nýta ferðina til að spyrja hæstv. forseta hvað væri að frétta af lögfræðiáliti sem átti að vinna fyrir þingið um þingskapalög og hvernig þau ynnu saman við beiðni allsherjar- og menntamálanefndar um að fá afhent gögn um veitingu ríkisborgararéttar frá Útlendingastofnun. Ég veit ekki betur en að þetta lögfræðiálit ætti að vera komið og velti fyrir mér hvað veldur töfunum á því.