svör við fyrirspurnum.
Forseti. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem hér hafa talað og beini því eindregið til hæstv. forseta að beita sínum myndugleika til að standa með þinginu. Löggjafarvaldið er í ákveðinni glímu við framkvæmdarvaldið og þá verður hæstv. forseti að átta sig á að hann er í liði með löggjafarvaldinu, ekki framkvæmdarvaldinu. Ég treysti forseta mjög vel til að stíga fram og, eins og ég segi, beita sínum myndugleika. Hér voru áðan sárasaklaus frammíköll til ráðherra sem svaraði ekki spurningum hér í óundirbúnum fyrirspurnum, kom ráðherranum að vissu leyti úr jafnvægi, en þá brást forseti mjög vel við og stýrði þinginu og beitti ákveðnum aga. Gott og vel. Ég óska eftir því að hann beiti svipuðum aga þegar hann fer með okkar erindi til framkvæmdarvaldsins, þ.e. ríkisstjórnarinnar. Ég beini því eindregið til hæstv. forseta.