152. löggjafarþing — 46. fundur,  3. mars 2022.

svör við fyrirspurnum.

[11:24]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Þegar tafir verða á skriflegum svörum við fyrirspurnum þingmanna læðist oft að manni sá grunur að svörin eða spurningarnar séu óþægilegar. Það held ég t.d. að sé varðandi þá fyrirspurn sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir lagði fram til heilbrigðisráðherra og var hér upphaf að umræðunni, enda snýst hún um aðgengi að sálfræðiþjónustu óháð efnahag, hið margsvikna loforð ríkisstjórnarinnar um að niðurgreiða sálfræðiþjónustu. Skoðum aðeins tölurnar þar. Þann 8. desember var fyrirspurnin lögð fram þannig að 15 virkra daga fresturinn rann út 30. desember. Það kom bréf frá ráðuneytinu 7. febrúar þar sem var óskað eftir fresti. Þetta bréf uppfyllti ekki einu sinni lagabókstafinn um að gera skriflega grein fyrir ástæðum tafa eða hvenær megi vænta svars. Þetta kom hvorugt fram og það er, eins og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson segir, lögbrot af hálfu ráðuneytis. Því síður er farið eftir skýrum vilja allrar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar frá því fyrir ári um að þetta sé skýrt. Verður við þetta unað, herra forseti?