samspil verðbólgu og vaxta.
Virðulegur forseti. Þegar ég ákvað að óska eftir umræðu um samspil verðbólgu og vaxta var það vegna þess að við erum að upplifa um þessar mundir mikinn óstöðugleika og aukna verðbólgu í íslensku samfélagi, óstöðugleika sem virðist hellast yfir okkur með reglulegu millibili og íslenskur almenningur þarf að takast á við í formi verðhækkana, vaxtabreytinga, verðbólgu og kaupmáttarrýrnunar. Íslenskur almenningur stjórnar ekki þessum öflum sem mestu ráða um breytingarnar en verður á endanum fyrir mestum skaða vegna þeirra áhrifa sem þetta hefur á lífskjör. Hver er að velta fyrir sér vaxtamunarviðskiptum, bindiskyldu bankanna og sveiflujöfnunarauka í daglegu lífi? Ég leyfi mér að fullyrða að flesta skorti þekkingu til að átta sig á slíkum hugtökum. Hins vegar er það þannig að hvert þessara atriða geta ráðið miklu um afkomu almennings. Að kaupa sér húsnæði er stór og mikil ákvörðun fyrir flesta sem gerir það að verkum að fólk þarf að setja sér markmið og gera áætlanir til áratuga um endurgreiðslu lána. En því miður er það svo að í fæstum tilfellum standast þessar áætlanir vegna ytri þátta sem fólk ræður ekki við.
Að lokum verður staðan alltaf sú að búið er að greiða margfalt verð fyrir fasteignina. Ég hef t.d. upplifað margar niðursveiflur á þeim tíma frá því að ég keypti mína fyrstu íbúð 20 ára gamall. Ég óska ekki börnunum mínum þess að þurfa að ganga í gegnum það sama og mín kynslóð hefur þurft. Ég sé hins vegar ekki að neinar breytingar séu í farvatninu. Ég fæ ekki annað séð en að íslensk örmynt, sem þarf bæði belti og axlabönd, sé ástæða þessa óstöðugleika sem við búum við.
Á sama tíma er óumdeilt að hagstjórnaraðgerðir bæði ríkisstjórnar og Seðlabankans síðustu tvö árin hafa skilað sér í sögulegri hækkun íbúðaverðs. Af þeirri ástæðu vil ég spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fjögurra spurninga sem eru svohljóðandi:
1. Var framkvæmd greining á því hvaða áhrif lækkun stýrivaxta og bindiskyldu og breyting á sveiflujöfnunarauka kynni að hafa á eftirspurn eftir húsnæði? Ef ekki, hvers vegna var það ekki gert?
2. Hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið rætt við Seðlabanka Íslands um hvaða aðgerðir hann geti gripið til annarra en stýrivaxtahækkana til að vinna gegn verðbólgu?
3. Eftir hrun var stýrivaxtahækkunum beitt ótæpilega með skelfilegum afleiðingum fyrir skammtímaskuldbindingar þjóðarbúsins og skammtíma- og langtímaskuldbindingar heimila. Nú eru 400 milljarða viðbótarskuldbindingar heimilanna augljós hættumerki. Hvaða lærdóm ætlar ríkisstjórnin að draga af þessu og hvernig hyggst hún koma í veg fyrir að hún endurtaki mistökin frá því í hruninu?
4. Hækkun stýrivaxta eykur vaxtamunarviðskipti. Hvernig mun fjármála- og efnahagsráðherra beita sér fyrir takmörkun þeirra og neikvæðum afleiðingum?
Þau stýritæki sem verið er að nota til að stilla af íslenskt efnahagslíf hafa alltaf tvær hliðar. Mun t.d. verða aukning á vaxtamunarviðskiptum sem getur haft styrkingu gengis í för með sér sem aftur hefur neikvæð áhrif á útflutningsgreinarnar? Á Seðlabankinn sýknt og heilagt að grípa inn í þróun gengis þegar endalaust er verið að tala um kosti þess að vera með fljótandi krónu? Má íslenskur almenningur ekki njóta þess ef krónan styrkist? Eiga allar okkar aðgerðir að miðast við útflutningsgreinar?
Virðulegur forseti. Ég hef áhyggjur af því að komandi kjarasamningar verði erfiðir vegna þeirrar stöðu sem upp er komin. Þegar Seðlabankinn hækkar frekar vexti en að leyfa krónunni að styrkjast kemur það sér vel fyrir útflutningsgreinar en bitnar á hag fólksins. Við virðumst vera komin í sömu hringavitleysuna aftur þar sem unga fólkið okkar hefur lagt allt undir í kaupum á húsnæði en þarf nú að kljást við það sem við af minni kynslóð þurftum að glíma við, þ.e. víxlverkun vaxta og verðbólgu sem enginn veit hvar endar.
Virðulegur forseti. Það er eins og við höfum ekkert lært.