samspil verðbólgu og vaxta.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu sem ég tel að sé tímabær og mikilvæg. Varðandi fyrstu spurninguna þá hafa viðbrögð seðlabanka og ríkissjóða á Vesturlöndum við útbreiðslu heimsfaraldursins víðast hvar verið áþekk. Í upphafi var útlit fyrir dýpsta efnahagsáfall í heila öld, áfall sem leit út fyrir að yrði bæði stærra og útbreiddara en fjármálakrísan. Til að bregðast við því lækkuðu seðlabankar vexti og drógu úr aðhaldi með öðrum hætti, svo sem með afléttingu sveiflujöfnunarauka. Samhliða því juku ríkissjóðir útgjöld og drógu úr skattheimtu. Þetta var gert til að styðja við fjárhag heimila og fyrirtækja í djúpri efnahagskreppu og við aðstæður verulegrar óvissu. Staðreyndin er svo sú að við gripum til skilvirkra aðgerða, m.a. til víðtækra bólusetninga og að lokum lærðum að lifa með veirunni. Stuðningsaðgerðir stjórnvalda og útsjónarsemi fólks og fyrirtækja leiddu til þess að efnahagsbatinn varð bæði skjótari og kraftmeiri en gert var ráð fyrir. Með skjótum efnahagsbata hefur innlend eftirspurn aukist mikið sem birtist ekki síst á húsnæðismarkaði. Verðhækkanir á húsnæðismarkaði eru þannig afleiðing þess að hagkerfið hefur tekið hraðar við sér en reiknað var með. Þetta á ekki aðeins við hér á landi enda er hækkun húsnæðisverðs ekki séríslensk þróun. Það voru framkvæmdar fjölmargar greiningar á þessu tímabili, bæði í ráðuneytinu, í Seðlabankanum og af öðrum greiningaraðilum. Engar þeirra gerðu ráð fyrir að innlend eftirspurn yrði eins kraftmikil og raun ber vitni. Í því samhengi má t.d. nefna að í Peningamálum Seðlabankans frá því í maí 2020, eftir að gripið var til þeirra ráðstafana sem spurt er um, segir að líklegt sé að það hægi enn frekar á verðhækkunum íbúðarhúsnæðis.
Varðandi aðra spurninguna þá hefur Seðlabanki Íslands m.a. það markmið að stuðla að stöðugri og lágri verðbólgu og hann hefur sjálfstæði sitt að lögum af sérstakri ástæðu. Til að ná þessum markmiðum hefur bankinn bæði þá sérþekkingu og hann hefur þau tæki sem þarf og hann notar þau tæki til að ná þessu markmiði með eins skilvirkum hætti og hægt er. Það er rétt sem fram hefur komið að eitt helsta vopn bankans í baráttunni við verðbólgu er hækkun stýrivaxta. Seðlabanki Íslands er ekki einn um að hafa fyrst og fremst það tæki því að stýrivextir eru helsta tæki allra vestrænna ríkja til að hafa áhrif á verðbólguna. Það er ekki tilviljun heldur eru stýrivextir almennt taldir besta tækið til að ná stjórn á verðbólgu. Bankinn hefur svo ýmis önnur tæki til að ná markmiðum sínum, ekki síst varðandi fjármálastöðugleika. Til að hemja verðhækkanir á húsnæði hefur bankinn t.d. sett takmarkanir á veðsetningarhlutföll íbúðalána og lágmark greiðslubyrðarhlutfalls. Seðlabankinn er hins vegar, eins og áður er komið fram, sjálfstæð stofnun og fjármála- og efnahagsráðuneytið hlutast ekki til um það með hvaða hætti hann nær markmiðum sínum. En við leggjum hins vegar áherslu á að Seðlabankinn hafi þau tæki sem hann telur sig þurfa til að ná markmiðunum og við leggjum áherslu á að stefna í opinberum fjármálum styðji við verðbólgumarkmiðið og dragi þannig úr þörf á verulegri hækkun stýrivaxta.
Að þriðju spurningunni. Stýrivextir voru vissulega hækkaðir í október 2008 en við getum ekki jafnað því við það sem er að gerast núna. Í fyrsta lagi fóru stýrivextir hæst í 18% í kjölfar fjármálakreppunnar. Á undanförnum mánuðum hafa meginvextir Seðlabankans hækkað úr 0,75% í 2,75%. Það munar töluvert miklu á 2,75% vaxtastigi eða 18%. Það munar reyndar nákvæmlega 15,25 prósentustigum. Í öðru lagi ber að líta til þess að það eru gjörólíkar ástæður fyrir því að vextir hækka nú. Markmiðið í kjölfar fjármálakreppunnar var fyrst og fremst að verja gengi krónunnar, en það er engin hætta á fjármagnsflótta nú eins og menn höfðu áhyggjur af á þeim tíma. Það má bæta við að skuldir hagkerfisins eru lágar í sögulegu samhengi núna og fjárhagsstaða heimilanna er sterk. Þegar hv. þingmaður talar um víxlverkun vaxta og verðbólgu þá vil ég kannski bæta við hinni sögufrægu víxlverkun verðbólgu og hækkana kauptaxta, sem er kannski það sem við þurfum að fara að hafa áhyggjur af.
Ég er ekki enn kominn að fjórðu spurningunni, get kannski komið inn á hana hér á eftir. En vaxtamunarviðskipti eru auðvitað eitthvað sem við erum ekki að reyna að laða fram. Einhver eðlileg fjárfesting í gengi krónunnar (Forseti hringir.) er ekki til þess að hafa miklar áhyggjur af en við þurfum að vera vakandi yfir því ef vaxtamunarviðskipti aukast um of.